3. mars 2022
Vara­samar holur í óvenju­legri tíð

Varasamar holur í óvenjulegri tíð

Vegfarendur, sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu, eru hvattir til að aka varlega og vera sérstaklega vakandi vegna holna sem nú eru að myndast í bundnu slitlagi á vegum. Þetta á sérstaklega við nú þegar tíðin er að breytast og veðurfar skiptist milli frosts og þíðu, sem eykur hættuna á holumyndun þar sem veikleikar eru í slitlagi vega.

Frost og þíða til skiptis síðla vetrar veldur því að vatn sígur inn í smá sprungur og göt í veglaginu, frýs og þiðnar, sem veldur því að efni losnar og holur myndast. Slíkt er eðlilegt fyrir árstíðina, en í ár er ástandið óvenju slæmt og fleiri holur en vanalega hafa komið fram á mörgum helstu samgönguleiðum.

Vegfarendur eru því beðnir um að sýna sérstaka aðgát, halda öruggri fjarlægð og draga úr hraða þegar ekið er á vegköflum sem eru sérstaklega viðkvæmir. Vegagerðin vinnur að því að gera við holur eins fljótt og auðið er, en mikilvægt er að ökumenn séu meðvitaðir um ástandið meðan viðgerðir standa yfir.

Við hvetjum alla til að fylgjast með upplýsingum á vefsíðu Vegagerðarinnar og í miðlum umferðarupplýsinga til að fá nýjustu upplýsingar um ástand vegarins og viðbrögð við holumyndun. Með samstilltu átaki ökumanna og Vegagerðarinnar er hægt að tryggja öryggi og lágmarka skemmdir á bifreiðum og veginum sjálfum.

Sjá má á kortinu sem fylgir fréttinni nokkra staði þar sem ástandið er sérlega slæmt. Vegskemmdir geta myndast hratt og geta t.d. stórar holur myndast skyndilega við slæm veðurskilyrði þar sem ójöfnur eru á yfirborði vega.  Það getur því verið bæði erfitt að varast vegskemmdir og tekið tíma fyrir Vegagerðina að bregðast við ástandinu. Vegfarendur eru sérstaklega beðnir um að huga að holum, ójöfnum og rásum í vegum.

Slæmir vegkaflar eru merktir sérstaklega, jafn hratt og við verðum komist en nú eru þrír flokkar Vegagerðarmanna að sinna því að fylla til bráðabirgða upp þær vegskemmdir sem hafa myndast að undanförnu. En þær halda áfram að myndast í þessu tíðarfari sem nú er. Viðgerðir til framtíðar verður ekki hægt að fara í fyrr en í vor og sumar og þá með mun varanlegra viðhaldi.

Verði vegfarandi fyrir tjóni á ökutæki er nauðsynlegt að fara á heimasíðu Vegagerðarinnar og fylla þar út tjónstilkynningu með rafrænum hætti:

Rétt er að hafa í huga að þegar viðgerð er framkvæmd á vegskemmd er gert við hana með því að fylla upp í hana með sérstöku fyllingarefni svo hún falli vel saman við vegskemmdina og komi þannig í veg fyrir frekara tjón. Í slæmu veðurfari og kulda getur bleyta komist í undirlag vegar og þrýstingur myndast á viðgerða vegskemmd sem getur þá einnig farið illa.

Staðirnir eru númeraðir á kortinu og vísa til þessa:

1. Holukafli á akreina til Reykjavíkur
2. Holukafli á akrein til Reykjavíkur
3. Holukafli á báðum akreinum
4. Holukafli á báðum akreinum
5. Holur á rampa
6. Holukafli sérstaklega á akrein út úr Reykjavík.
7. Holukafli sérstaklega á akrein út úr Reykjavík.
8. Holukafli  á akrein á leiðinni út úr Reykjavík.
9. Holur á báðum akreinum.