29. maí 2026
Útboð brúar yfir Djúpa­fjörð

Rétt er að ítreka vegna fréttaflutnings um útboð brúar yfir Djúpafjörð á sunnanverðum Vestfjörðum að unnið er að því að ljúka allri vinnu við útboðsgerðina sem mun mjög fljótlega líta dagsins ljós.

 

Útboðinu hefur ekki verið frestað ótímabundið þótt lengri tíma hafi tekið að ljúka gerð útboðsgagna og hnýta alla lausa enda en vonast var til.

Verkið er síðasti áfangi hinnar miklu vegagerðar um sunnanverða Vestfirði sem fram hefur farið undanfarin ár og áratugi. Brúin er flókið viðfangsefni vegna stærðar þessarar bogabrúar í einu hafi.

Tölvuteikning af fyrirhugaðri brú.

Tölvuteikning af fyrirhugaðri brú.

Frá Djúpafirði. Myndin er tekin í mars.

Frá Djúpafirði. Myndin er tekin í mars.