Mikil úrkoma hefur tafið viðhaldsvinnu á brúnni yfir Jökulsá á Fjöllum þar sem m.a. er unnið að málun hennar. Nú er ljóst að ekki næst að ljúka málningarvinnu fyrr en í lok júní, að því gefnu að ekki verði áframhaldandi úrkoma næstu daga og vikur. Náið er fylgst með veðurspám og staðan tekin daglega, enda allt kapp lagt á að ljúka þessari vinnu sem fyrst. Raunupplýsingar um umferðartakmarkanir er ávallt að finna á umferdin.is. Þar er jafnframt tilkynnt um breytingar á áformum háð veðri hverju sinni, um leið og ákvarðanir eru teknar.

Brúin yfir Jökulsá á Fjölllum.
Viðhaldsvinna við brúna yfir Jökulsá á Fjöllum hófst þann 26. maí síðastliðinn og var upphaflega áætlað að hún stæði til 16. júní. Umferðartakmarkanir hafa verið á brúnni vegna vinnunnar en þær hafa fallið niður þá daga sem ekki hefur verið hægt að vinna vegna rigningar og bleytu.
Þegar er búið að sandblása burðarkapla brúarinnar og grunna um helming þeirra. Unnið er að því að grunna aðra umferð og byrjað er að lakka lokaumferð að hluta. Ekki er hægt að nota fljótlegri aðferðir, svo sem sprautumálun, heldur þarf að vinna með penslum til að tryggja að yfirborð burðarkaplanna sé fullkomlega lokað.
Brúin var byggð árið 1947 og burðarþolið hefur minnkað í áranna rás. Ryðmyndun í köplum er orðin nokkur og því er afar mikilvægt að stöðva þá þróun með því að klára þessa vinnu sem fyrst.
Umferð var takmörkuð yfir brúna dagana 26., 27. og 28. maí en hún var opin 29. maí sökum rigningar. Mánudaginn 1. júní varð að hverfa frá vinnu þegar það byrjaði að rigna en hægt var að mála bæði 2. og 3. júní. Dagana 4. og 5. júní var brúin opin en ekki var hægt að vinna vegna rigningar og kulda. Vinna hófst aftur 8. júní og var hægt að vinna áfram á þriðjudag og miðvikudag en í dag, fimmtudag og á morgun er útlit fyrir að ekki verði hægt að vinna vegna úrkomu. Vel er fylgst með veðurspánni og staðan metin reglulega.
Ef það helst þurrt verður unnið alla virka daga frá klukkan 8:00 á morgnana til klukkan 19:00 á kvöldin. Opið verður fyrir umferð á eftirfarandi tímum dags:
09:45 – 10:15
12:00 – 13:00
14:45 – 15:15
16:45 – 17:15
Lokanir ættu ekki að hafa mikil áhrif á neyðarflutninga þar sem unnt verður að opna fyrir umferð um brúna með skömmum fyrirvara ef aðstæður krefjast.
Vonast er til að klára verkið í lok júní. Upplýsingaskilti með leiðbeiningum og merkingum eru við brúna. Vegagerðin biðlar til vegfarenda að sýna þolinmæði, fylgja merkingum og virða fyrirmæli á svæðinu.

Kort af framkvæmdasvæðinu.

Kort af framkvæmdasvæðinu.

Frá vinnu við brúna.

Frá Jökulsá á Fjöllum.