10. apríl 2026
Upplýs­ingar vegna lokunar Hval­fjarðar­ganga

Vegagerðin vill koma á framfæri upplýsingum  vegna lokana í Hvalfjarðargöngum, en göngin verða lokuð á kvöldin næstu vikurnar frá kl. 21:30 til kl. 06:00, frá sunnudagskvöldum til föstudagsmorgna vegna nauðsynlegrar endurnýjunar á lýsingu. Áætlað er að verkinu ljúki 29. maí.  Neyðarakstur er leyfður í gegnum göngin.

Starfsfólk Rafmanna ehf. við vinnu í Hvalfjarðargöngum. Mynd/Anton Brink

Starfsfólk Rafmanna ehf. við vinnu í Hvalfjarðargöngum. Mynd/Anton Brink

Ljóst er að lokanir valda vegfarendum óþægindum og er það miður, en um er að ræða óhjákvæmilega framkvæmd sem miðar að því að tryggja öryggi og uppfæra mikilvæga innviði til samræmis við nútímakröfur.

Verkið felst í heildarendurnýjun á lýsingarbúnaði ganganna sem hefur verið í notkun í um þrjá áratugi, eða frá því að göngin voru opnuð árið 1998. Um er að ræða daglýsingu við gangamunna, almenna veglýsingu og tengd kerfi. Allur eldri búnaður, þar á meðal lampar, strengir og stýringar, er fjarlægður og nýr, dimmanlegur búnaður settur upp sem uppfyllir kröfur samtímans.

Framkvæmdir í jarðgöngum eru flóknar og fara fram í mjög þröngu rými. Unnið er í allt að sex metra hæð með notkun vinnulyfta sem taka verulegt pláss  á akbrautum og þarf auk þess að færa reglulega til. Við niðurtöku er eldri búnaður fjarlægður jafnóðum, sem þýðir að efni getur fallið á akbraut áður en það er fjarlægt. Á sama tíma er lýsing á viðkomandi svæðum tekin úr notkun, sem getur valdið verulega skertum birtuskilyrðum.

Við uppsetningu nýrra strengja er unnið með stór og fyrirferðarmikil strengjakefli, einkum við gangamunna, sem þrengir að vinnusvæðinu enn frekar. Vinnusvæðið er jafnframt síbreytilegt þar sem tæki og búnaður eru stöðugt færð til, sem gerir ómögulegt að afmarka það með öruggum hætti gagnvart umferð. Þá er ekki unnt að nýta loftræstikerfi ganganna meðan á framkvæmdum stendur án þess að skapa óviðunandi aðstæður fyrir starfsmenn.

Tímasetning framkvæmdanna á vormánuðum var ákveðin með það í huga að nýta tímabil þar sem almennt má gera ráð fyrir góðri færð um Hvalfjörðinn, en áður en umferð eykst með sumrinu.

Með hliðsjón af framangreindu er ljóst að brýnt er að halda vinnusvæðinu lausu við umferð meðan á framkvæmdum stendur til að tryggja öryggi bæði starfsmanna og vegfarenda.

Lokunartími ganga

Göngin eru lokuð á kvöldin frá kl. 21:30 til kl. 06:00, frá sunnudagskvöldum til föstudagsmorgna, á tímabilinu 7. apríl til 29. maí. Göngin verða einnig lokuð á opinberum frídögum sem hitta ekki á helgi. Þar má nefna sumardaginn fyrsta, 1.maí, uppstigningardag og annan í hvítasunnu. Ferðalangar eru hvattir til að hafa það í huga við skipulagningu ferðalaga, t.d. þegar farið er norður á Andrésar Andarleikana.

Vegagerðin hefur skilning á þeim áhrifum sem lokanir hafa á daglegt líf og atvinnustarfsemi á svæðinu og leitast við að halda raski í lágmarki án þess að stefna öryggi eða framgangi verksins í hættu.

Lögð er áhersla á að ljúka framkvæmdum eins fljótt og auðið er og tryggja að þessi tímabundnu áhrif vari sem skemmst. Þá er stefnt á að upplýsa um framgang verksins reglulega á næstu vikum.

Unnið er við þröngar og oft erfiðar aðstæður í göngunum.

Unnið er við þröngar og oft erfiðar aðstæður í göngunum.

Unnið er á miðju vegar við verkið. Mynd/Anton Brink

Unnið er á miðju vegar við verkið. Mynd/Anton Brink

Rafmenn ehf. sjá um framkvæmdina. Mynd/Anton Brink

Rafmenn ehf. sjá um framkvæmdina. Mynd/Anton Brink