28. september 2026
Uppfært – Fram­kvæmd­um við Hoffells­árbrú frest­að vegna veðurs

Framkvæmdum við Hoffellsárbrú á Hornafjarðarvegi (987) sem fara áttu fram næstu daga hefur verið frestað vegna veðurs. Með frestun framkvæmdanna fellur jafnframt niður fyrirhuguð niðurfelling gjaldtöku og verður gjaldtaka á Hringvegi 1 um Hornafjörð því óbreytt þar til annað verður tilkynnt. Stefnt er á framkvæmdir í næstu viku og mun ekki verða tekið veggjald af akstri um Hringveg (1) um Hornafjörð meðan brúin er lokuð.

Framkvæmdir við einbreiða Hoffellsárbrú fer fram vikuna 5. til 9. október.

Framkvæmdir við einbreiða Hoffellsárbrú fer fram vikuna 5. til 9. október.

Eftirfarandi texti mun eiga við þegar framkvæmdir fara af stað í næstu viku:

Ráðast þarf í nauðsynlegar viðhaldsaðgerðir á einbreiðri brú yfir Hoffellsá sem ekki var mögulegt meðan Hornafjarðarvegur (987) var hluti af Hringvegi (1). Á þeim tíma var ekki önnur akstursleið um svæðið og því ekki mögulegt að loka brúnni vegna viðgerða.

Nú þegar umferð um Hringveg fer um nýjan veg um Hornafjörð hefur skapast tækifæri til að vinna að þessum viðgerðum.

Hoffellsárbrú verður lokuð allri umferð meðan á framkvæmdum stendur og því verður ekki hægt að aka Hornafjarðarveg (987) þessa daga. Vegfarendur eru þess í stað beðnir um að aka um nýjan Hringveg (1).

Engin gjaldtaka á nýjum Hringvegi

Engin gjaldtaka verður á Hringvegi (1) um Hornafjörð á meðan Hoffellsárbrú er lokuð. Vegfarendur sem þurfa að fara um Hringveginn vegna lokunarinnar greiða því ekki veggjald á tímabilinu.

Vegfarendur eru beðnir um að sýna þolinmæði og virða merkingar á vinnusvæðinu. Vegagerðin biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem lokunin kann að valda.