15. júlí 2026
Undir­búningur fyrir turn brúar í Efri-Laugar­dæla­eyju – mynd­band

Nú stendur yfir mikilvægur undirbúningur fyrir uppsetningu turns nýrrar Ölfusárbrúar í Efri-Laugardælaeyju. Í nýju myndbandi er rætt við Hjört Frey Jóhannsson verkefnastjóra hjá ÞG verktökum.

Unnið að undirbúningi turns í Efri_Laugardælaeyju sumarið 2026.

Unnið að undirbúningi turns í Efri_Laugardælaeyju sumarið 2026.

Smíðað hefur verið svokallað skapalón sem er notað til að staðsetja nákvæmlega innsteyptar boltafestingar í undirstöðu turnsins, en turninn verður boltaður fastur við þær.

Mikla nákvæmni þarf við verkið. Boltafestingarnar þurfa að vera á réttum stað með aðeins um eins millímetra skekkjumörkum.

Turninn sem reistur verður í Efri-Laugardælaeyju verður um 60 metra hár og verður eitt mest áberandi mannvirki brúarinnar.