5. janúar 2026
Umsókn­ir um rann­sóknar­styrki

Umsóknir um rannsóknarstyrki

Vegagerðin leitar að hagnýtum og stefnumiðuðum rannsóknarverkefnum sem styðja við öruggar, sjálfbærar og hagkvæmar samgöngur.

Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Rannsóknasjóði Vegagerðarinnar til rannsóknarverkefna fyrir árið 2026.

Umsóknarfrestur er til klukkan 17:00, 30. janúar 2026.

Bent er á að lesa allan textann hér að neðan áður en umsókn er samin og send inn.

Frá rannsóknaráðstefnu Vegagerðarinnar 2025.

Frá rannsóknaráðstefnu Vegagerðarinnar 2025.

Aðilar innan sem utan Vegagerðarinnar geta sótt um fjárframlög til rannsóknarverkefna sem tengjast starfsemi stofnunarinnar. Rannsóknaráð Vegagerðarinnar sér um úthlutun styrkja.

Rannsóknum Vegagerðarinnar er skipt í fjóra meginflokka:

  • Mannvirki
  • Umferð
  • Umhverfi
  • Samfélag

Áherslur Vegagerðarinnar á þessa flokka taka mið af því markmiði Rannsóknasjóðs að styðja Vegagerðina í hlutverki sínu og jafnframt að afla nýrrar þekkingar á starfssviði hennar. Innan Vegagerðarinnar starfa þrjár fagnefndir um þessa málaflokka. Þær hafa skilgreint áherslur sjóðsins við úthlutun fyrir árið 2026.

  • Mannvirki: Rannsóknir á sviði mannvirkjagerðar taka til vega, brúa, jarðganga, hafna og vita. Áhersla er lögð á efnismál, notkun mismunandi efna, endurvinnslu og endurnotkun í mannvirkjagerð, með það að markmiði að bæta endingu og öryggi mannvirkja. Litið er til samþættingar almennrar- og vetrarþjónustu, endingar slitlaga og mannvirkja sem heildar, til að tryggja greiðfærni, öryggi og hagkvæman líftíma. Mikilvægt er að halda áfram slitlags- og steypurannsóknum og stuðla að framþróun í styrkingum, viðhaldi, endurbótum og eftirfylgni. Kallað er eftir hagkvæmum lausnum sem uppfylla kröfur á jarðskjálftasvæðum. Þá er lögð áhersla á rannsóknir á hringrásarhagkerfi, lífsferilsgreiningum og kolefnisfótspori. Jafnframt er áhersla á rannsóknir á áhrifum orkuskipta og þungaflutninga á vegakerfið, sem og á umferðaröryggi og greiðfær akstursskilyrði við mögulega náttúruvá á landi og í þéttbýli.
  • Umferð: Áhersla er lögð á rannsóknir sem varða umferðaröryggi, uppbyggingu, þjónustu og viðhald vegakerfisins, sem og verkefni sem nýtast til þróunar og uppfærslu hönnunarreglna og -leiðbeininga fyrir samgöngumannvirki. Kallað er eftir rannsóknum sem styðja við upplýsta ákvarðanatöku um val samgöngukosta, þar á meðal mat á hagkvæmni, öryggi, umhverfisáhrifum, greiðfærni og jákvæðri byggðaþróun. Sérstök áhersla er á efnahagslegar forsendur, svo sem mat á slysa- og tafakostnaði, sem nýtast við mat á arðsemi fjárfestinga í þágu almennings. Áhersla er einnig á rannsóknir varðandi skilvirka snjallkerfavæðingu samgöngukerfisins (ITS), áhrif aukinna landflutninga á vegakerfið og rannsóknir sem styðja við skilvirka eignaumsjón og þróun aðferða til mats á líftímakostnaði mannvirkja.
  • Umhverfi: Sjálfbærni í verkefnum Vegagerðarinnar. Verkefni sem minnka umhverfisspor vegna starfsemi Vegagerðarinnar, m.a. með rannsóknum og nýsköpun sem styðja við hringrásarhagkerfið og lágmörkun á neikvæðum umhverfisáhrifum framkvæmda auk mótvægisaðgerða. Verkefni tengd líffræðilegum fjölbreytileika í tengslum við starfsemi Vegagerðarinnar.
  • Samfélag: Loftgæði vegna umferðar og framkvæmda, fjölbreyttir ferðamátar, breyttar ferðavenjur, þróun almenningssamgangna auk samspils nýrra orkugjafa og vegakerfisins. Verkefni tengd sjálfbæru skipulagi í hinu byggða umhverfi og þróun atvinnusóknarsvæða.

Umsóknir sem falla ekki beint að áherslum sjóðsins fyrir árið 2026 eru engu að síður velkomnar, enda styðji þær markmið Vegagerðarinnar og sjóðsins. Við mat á umsóknum er sérstaklega horft til þess hvaða rannsóknir nýtast Vegagerðinni best hverju sinni.

Í stefnu Vegagerðarinnar fyrir árin 2024-2028 kemur fram að hlutverk Vegagerðarinnar er að stuðla að öruggum, sjálfbærum, greiðum og hagkvæmum samgöngum á sjó og landi. Þá skal hún stuðla að því að samgöngur þróist í samræmi við samfélagsleg og umhverfisleg markmið. Í þessu samhengi má vísa til aðgerðaráætlunar íslenskra stjórnvalda í loftslagsmálum og heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Rannsóknarverkefni ættu að taka mið af þessu.

Í rannsóknastefnu Vegagerðarinnar sem finna má á vef stofnunarinnar er einnig lögð áhersla á nýliðun innan fagsviða sem tengjast starfsemi Vegagerðarinnar með samstarfi við háskólasamfélagið. Umsóknir frá háskólum með þátttöku nemenda í verkefnum velkomnar, þó slíkar umsóknir njóti ekki forgangs fram yfir aðrar.

Við skilgreiningu rannsóknarverkefna skal í upphafi áætla hverjir muni nýta niðurstöður verkefnisins og gefa þeim færi á að koma að mótun þess og innleiðingu niðurstaðna eftir því sem við á. Því er óskað eftir að tengiliður innan Vegagerðarinnar sé skilgreindur og hann upplýstur. Þá er einnig bent á, að mikilvægt er að kanna heimildir um fyrri rannsóknir, sem hugsanlega hafa verið gerðar, tengdar viðkomandi umsókn um verkefnastyrk.

Vegagerðin er í samstarfi við systurstofnanir sínar á Norðurlöndunum um rannsóknir (sjá hér: www.nordfou.org). Gjarnan má velta fyrir sér hvort hugmynd að verkefni hafi norræna skírskotun, þ.e. er líklegt að það sem fjalla á um í verkefninu sé einnig áhugavert fyrir hin Norðurlöndin. Ef svo er, má það gjarnan koma fram í umsókninni.

Umsækjendur þurfa að fylla út rafrænt umsóknareyðublað sem nálgast má á „mínum síðum“ á vef Vegagerðarinnar.

Við mat umsókna verður tekið tillit til atriða sem fram koma í eftirfarandi töflu. Lögð er áhersla á að leiðbeiningum í umsóknareyðublaði sé fylgt og vafaatriði vegna skorts á upplýsingum geta fallið umsókn í óhag.

 

Markmiðasetning

(e. Excellence)

Áhrif

(e. Impact)

Framkvæmd

(e. Implementation)

Hve skýr eru markmiðin? Eru forsendur þeirra rökréttar?

Hve raunhæf, trúverðug og markviss er aðferðafræðin?

Er rannsóknarspurningin í takt við stöðu þekkingar í dag?

Munu niðurstöður bæta einhverju við stöðu þekkingar sem um munar?

Að hve miklu leyti styður verkefnið og niðurstöður þess við markmið sjóðsins?

Hversu líklegar eru niðurstöðurnar til að gagnast Vegagerðinni?

Hve vænleg er framkvæmdaáætlun? Eru aðföng og vinnuafl nægjanleg m.t.t. þess sem gera skal, þ.m.t. hæfni þátttakenda?

Ríkir áhætta um framkvæmdina? Er gerð grein fyrir því hvernig tekið er á henni?

 

Upplýsingar um afgreiðslu umsókna verður birt á „mínum síðum“ þegar þær liggja fyrir, miðað er við að það verði í fyrri hluta mars 2026. Tilkynning verður send á þau tölvupóstföng umsækjanda og verkefnisstjóra, sem skráð eru í umsókninni.

Upplýsingar um styrkt verkefni verða birtar á vef Vegagerðarinnar.

 

Fyrirspurnir:

Ólafur Sveinn Haraldsson

Forstöðumaður rannsóknadeildar

olafur.s.haraldsson@vegagerdin.is.