Vegagerðin áformar að tvöfalda Reykjanesbraut (41) á 4,7 km kafla milli Hafnavegar (44) og Garðskagavegar (45). Umhverfismatsskýrsla vegna framkvæmdarinnar er nú til kynningar hjá Skipulagsgátt og er hægt að senda inn umsagnir eða athugasemdir til 13. október. Samhliða því leitar Skipulagsstofnun umsagna frá lögbundnum umsagnaraðilum og leyfisveitendum.
Unnið hefur verið að tvöföldun Reykjanesbrautar (41) frá árinu 2003 og er stefnt að því að hún verði tvöföld frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli að höfuðborgarsvæðinu. Núverandi tvöföldun Reykjanesbrautar nær frá hringtorgi við Fitjar til austurs að höfuðborgarsvæðinu.
Fyrirhugaður framkvæmdakafli mun hefjast við Fitjar þar sem nú er hringtorg sem tengir Reykjanesbraut við Hafnaveg (44) og Víknaveg/Stekk í Njarðvík. Hann mun enda við Rósaselstorg þar sem nú er hringtorg þar sem Reykjanesbraut, Sandgerðisvegur (429) og Garðskagavegur (45) koma saman. Um er að ræða 4,7 km langan kafla Reykjanesbrautar í bæjarfélögunum Reykjanesbæ og Suðurnesjabæ.
Vegagerðin hyggst tvöfalda veginn þannig að vegurinn verði fjögurra akreina vegur, með tveimur akreinum í hvora átt og aðskilnaði akstursstefna með vegriði. Fyrirhugað er að nýta núverandi Reykjanesbraut (41) eins og hægt er fyrir umferð frá austri til vesturs en byggja nýjan tveggja akreina veg við hlið hennar, að sunnanverðu, fyrir umferð frá vestri til austurs.
Til þess að það sé mögulegt þarf þó að laga yfirborðshalla núverandi vegar úr þakhalla í einhalla. Frumdrög vegna framkvæmdarinnar lágu fyrst fyrir árið 2020 en hafa nú verið uppfærð.
Tilgangur framkvæmdarinnar er að auka greiðfærni samgangna um Reykjanesbraut (41) og hafa þar með jákvæð áhrif á samfélagið. Aðskildar akstursstefnur með vegriði á milli og mislæg vegamót, munu hafa í för með sér greiðari og öruggari samgöngur en nú
Í umhverfismatsskýrslunni eru eftirfarandi umhverfisþættir til skoðunar: Gróðurfar, fuglalíf, menningarminjar, jarðmyndanir, vatnshlot, landslag; útivist og ásýnd lands, loftgæði og hljóðvist.
Sjá nánar á vef Skipulagsgáttar: https://skipulagsgatt.is/issues/2024/853
Einnig má finna upplýsingar um verkefnið á vef Vegagerðarinnar.

Reykjanesbraut (41) Hafnavegur-Garðskagavegur-matsáætlun

Forsíða matsáætlun Hafnavegur - Garðskagavegur