Umhverfismat vegna tvöföldunar Reykjanesbrautar, milli Hafnavegar og Garðaskagavegar, var til kynningar á opnu húsi Vegagerðarinnar í Myllubakkaskóla í gær. Umhverfismatsskýrslan er nú í kynningarferli hjá Skipulagsgátt og er hægt að senda inn umsagnir og athugasemdir til 13. október.
Á staðnum voru fulltrúar frá Vegagerðinni og ráðgjafateymi frá Cowi, sem tóku á móti gestum og veittu upplýsingar m.a. um umhverfismatið, framkvæmdina og áhrif hennar á nærumhverfið. Mæting var með ágætum og gestir voru áhugasamir um framkvæmdina í heild í sinni.
Fyrirhugaður framkvæmdakafli hefst við Fitjar þar sem nú er hringtorg sem tengir Reykjanesbraut við Hafnaveg (44) og Víknaveg/Stekk í Njarðvík. Hann endar við Rósaselstorg þar sem nú er hringtorg þar sem Reykjanesbraut, Sandgerðisvegur (429) og Garðskagavegur (45) koma saman. Um er að ræða 4,7 km langan kafla Reykjanesbrautar í bæjarfélögunum Reykjanesbæ og Suðurnesjabæ.
Vegagerðin hyggst tvöfalda veginn þannig að vegurinn verði fjögurra akreina vegur, með tveimur akreinum í hvora átt og aðskilnaði akstursstefna með vegriði. Fyrirhugað er að nýta núverandi Reykjanesbraut (41) eins og hægt er fyrir umferð frá austri til vesturs en byggja nýjan tveggja akreina veg við hlið hennar, að sunnanverðu, fyrir umferð frá vestri til austurs.
Athugasemdir vegna umhverfismatsins skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 13. október næstkomandi inn á Skipulagsgátt þar sem jafnframt má finna umhverfismatsskýrslu framkvæmdar ásamt fylgigögnum.
Sjá nánar: Umhverfismat. Reykjanesbraut: Hafnavegur-Garðskagavegur.

Markmið framkvæmdarinnar er m.a. að auka umferðaröryggi.

Gestir voru áhugasamir um verkefnið.

Tölvugerð mynd; Aðaltorg.

Tölvugerð mynd af Reykjanesbraut, horft til suðvesturs.