6. júlí 2026
Umferð­in eykst að nýju

Eftir þriggja mánaða samfelldan samdrátt jókst umferð á Hringveginum á ný í júní. Umferð var 3,6% meiri en í júní í fyrra og má rekja aukninguna að stórum hluta til verulegrar fjölgunar ökutækja um mælisnið við Úlfarsfell, sem hefur töluverð áhrif á heildarniðurstöður. Frá áramótum hefur umferð aukist um 1,0% miðað við sama tímabil í fyrra.

Hringtorg á Vesturlandsvegi.

Hringtorg á Vesturlandsvegi.

Umferð um Suðurland (-0,6%) og Vesturland (-1,8%) dróst lítillega saman en aukning mældist á öðrum svæðum. Mest jókst umferð um mælisnið við Úlfarsfell (9,5%) en mestur samdráttur varð um mælisnið á Mývatnsöræfum (-4,2%).

Umferð frá áramótum

Nú hefur umferðin aukist um 1,0%, frá áramótum, borið saman við sama tímabil á síðasta ári.  Þessi aukning verður að teljast lítil sé hún t.d. borin saman við meðalaukningu, á árabilinu 2022 – 2025 (4,8%).

Umferð vikudaga

Frá áramótum hefur umferð aukist á þriðjudögum (3,0%), miðvikudögum (3,2%), laugardögum (0,1%) og sunnudögum (3,6%) en dregist saman á mánudögum (-2,1%), fimmtudögum (-0,1%) og föstudögum (-1,0%). Mest er ekið á föstudögum en minnst á laugardögum.

Horfur út árið 2026

Spálíkan umferðardeildar Vegagerðarinnar gerir ráð fyrir að umferð muni aukast um 3,5%, það sem eftir lifir árs. Gangi sú spá eftir mun heildaraukning umferðar verða um 2,5%.

Það ber að hafa í huga að þetta spálíkan tekur ekki tillit til stöðu hagkerfisins, en vegna náinna tengsla umferðar og hagvaxtar, mun umferðin að öllum líkindum aukast í takt við þá þróun, sem bankar og stofnanir spá að verði á bilinu 1,5 – 2,5%, fyrir árið 2026.

 

Fyrirvari:  Allar umferðartölur eru grófrýndar og geta því tekið breytingum við endanlega yfirferð.

Slóð inn á talnaefni

Samantektartafla nr. 3
2026/2025
2025/2024
Landssvæði
Milli júní mánaða
Uppsafnað frá áramótum
Milli júní mánaða
Uppsafnað frá áramótum
Suðurland
-0,6%
-1,0%
0,4%
0,1%
Höfuðborgarsvæði
7,7%
2,1%
-2,4%
0,1%
Vesturland
-1,8%
-0,6%
5,3%
4,7%
Norðurland
2,3%
1,6%
11,4%
8,1%
Austurland
1,4%
-0,9%
12,2%
6,2%
Samtals (vegið)
3,6%
1,0%
1,3%
1,7%