Umferðin á Hringveginum í september jókst um 2,5 prósent miðað við sama mánuð í fyrra. Ekki hefur verið ekið jafn mikið á Hringveginum í september. Útlit er fyrir að umferðin í ár aukist um 1,5 til 2 prósent samkvæmt spálíkani Vegagerðarinnar. Umferðin er aftur farin að aukast í hverjum mánuði en fyrr í ár dróst umferðin saman í nokkrum mánuðum.
Milli mánaða 2025 og 2026
Umferðin í september um 16 lykilteljara á Hringveginum jókst um 2,5% milli ára. Aldrei hefur verið jafn mikil umferð í umræddum mánuði á Hringveginum.
Mest jókst umferðin á Suðurlandi eða um 5,2% milli ára í september en jókst minnst á Vesturlandi eða um 0,9% milli ára í september.
Frá áramótum
Núna hefur umferð aukist um 1,8% frá áramótum sem er örlítil meiri aukning en var á sama tíma á síðasta ári.
Mest hefur umferð aukist í grennd við Höfuðborgarsvæðið en minnst á Vesturlandi.
Umferð eftir vikudögum
Það sem af er ári hefur mest verið ekið á föstudögum en minnst á laugardögum.
Umferðin dróst saman á föstudögum eða um -0,4% en jókst mest á sunnudögum um 3%.
Horfur út árið 2026
Eins og staðan er í dag, og ef umferð hegðar sér það sem eftir lifir árs eins og í meðalári má búast við 1,5-2,0% aukningu í umferð. Það verður fróðlegt að fylgjast með þróun umferðar næstu mánuði til að sjá hvort þessi spá gengur upp.
Athygli er vakin á því að öll gögn eru grófrýnd, og gætu tekið breytingum við endanlega yfirferð.

Hringvegur-hlutfall-september

Hringvegur-samanlagt-september

Hringvegur-vikudagar-september

Hringvegur-mánuðir-september

Hringvegur-vísitala-september