Umferðin á Hringveginum dregst lítillega saman í júlí
Umferðin á Hringveginum í nýliðnum júlí mánuði dróst óvænt saman. Samdrátturinn nam 0,1 prósenti og er nær eingöngu í og við höfuðborgarsvæðið. Verslunarmannahelgin (að undanskildum mánudeginum vegna samanburðar) var einungis umferðarmesta helgi ársins á Austurlandi. Þrátt fyrir að samanburður sé erfiður má leiða líkum að því að aðrar helgar sumarsins sæki í sig veðrið sem umferðamiklar ferðahelgar. Útlit er fyrir að umferðin í ár aukist töluvert minna en að meðaltali síðustu ár.
Umferð milli júlí mánaða árin 2024 og 2025
Umferðin í nýloknum júlí mánuði reyndist minni en búast hefði mátt við, en 0,1% samdráttur varð í umferðinni, borið saman við sama mánuð á síðasta ári. Helsta ástæða þessa samdráttar er sú að 5,8% samdráttur varð í umferð á og í grennd við höfuðborgarsvæðið, sem reyndar var eina landssvæðið er sýndi samdrátt. Umferð jókst í öllum öðrum svæðum og mest um Vesturland (6,4%).
Af einstaka mælisniðum jókst umferð mest um mælisnið á Mýrdalssandi (11,5%) en mesti samdrátturinn varð um mælisnið á Geithálsi (-8,8%).
Samanburðartafla júlí
Umferð frá áramótum
Nú þegar umferðarmesti mánuður ársins er liðinn er uppsöfnuð umferð, fyrir mælisniðin í heild, orðin 1,2% meiri en hún var á sama tíma á síðasta ári. Öll svæði, utan á og í grennd við höfuðborgarsvæðið, sýna aukningu. Mest hefur umferð aukist um Norðurland, það sem af er ári (7,3%), en 1,2% samdráttur mælist á og í grennd við höfuðborgarsvæðið.
Umferð eftir vikudögum
Það sem af er ári er umferðarmesti vikudagurinn, að jafnaði, föstudagur en umferðarminnsti dagur vikunnar er laugardagur.
Mest hefur umferð aukist á mánudögum en staðið í stað á fimmtudögum.
Horfur út árið 2025
Eftir að samdráttur mældist í júlíumferð, hefur spá um umferð minnkað. Núna í ár stefnir í 1,5% umferðaraukningu miðað við síðasta ár. Meðalumferðaraukning á ári, milli áranna 2005 til 2024, er 3,2% þ.a.l. yrði aukningin í ár langt undir meðalaukningu undanfarinna ára.
Helgarumferð það sem af er sumri
Umferðarmestu helgarnar (júní til ágúst) fram til þessa, (föstudagur – sunnudags), að meðtaldri nýliðinni verslunarmannahelgi (1-3 ágúst):
Landssvæði | Dags. helgar | Staða Verslunarmannahelgarinnar |
Suðurland | 25. – 27. júlí | sú umferðarminnsta |
Höfuðborgarsvæðið | 13. – 15. júní | sú umferðarminnsta |
Vesturland | 4. – 6. júlí | sú næst umferðarminnsta |
Norðurland | 25. – 27. júlí | sú næst umferðarmesta |
Austurland | 1. – 3. ágúst | sú umferðarmesta |
Af öllum helgum sumarsins, það sem af er, er verslunarmannahelgin sú umferðarminnsta, þegar reiknað er með umferð frá föstudegi til sunnudags. En þannig verður að reikna ef bera á þessa helgi saman við aðrar helgar.
Fyrirvari: Öll gögn úr umferðarteljurum eru grófrýnd og geta því tekið breytingum við endanlega yfirferð.
Hringvegur-mánuðir-júlí
Hringvegur-hlutfall-júlí
Hringvegur-vísitala-júlí
Hringvegur-samanlagt-júlí
Hringvegur-vikudagar-júlí