Umferðin á höfuðborgarsvæðinu eykst í júlí
Ólíkt því sem varð á Hringvegi í júlí jókst umferðin á höfuðborgarsvæðinu um ríflega tvö prósent. Meiri umferð hefur ekki áður mælst í júlí um þrjú lykilmælisnið Vegagerðarinnar. Umferðin í ár er meiri en hún var í fyrra og útlit er fyrir að umferðin í ár aukist um nærri þrjú prósent.
Umferð milli júlí mánaða 2024 og 2025
Umferð hefur aldrei verið meiri í júlí, innan höfuðborgarsvæðis, en 2,1% aukning varð í umferðinni í nýliðnum mánuði, borið saman við sama mánuð á síðasta ári. Þess ber þó að geta að júlí er með umferðarminnstu mánuðum ársins, innan höfuðborgarsvæðis.
Aukning varð í öllum mælisniðum en mest jókst umferðin í mælisniði á Hafnarfjarðarvegi, við Kópavogslæk (3,1%).
Umferð frá áramótum
Nú þegar árið er rétt rúmlega hálfnað er uppsöfnuð umferð, fyrir mælisniðin þrjú, orðin 2,1% meiri en hún var á sama tíma á síðasta ári.
Umferð eftir vikudögum
Umferð jókst í öllum vikudögum, utan mánudaga (-0,9%). Hlutfallslega jókst umferð mest á sunnudögum (7,0%).
Mest var ekið á fimmtudögum en minnst á sunnudögum, í nýliðnum mánuði.
Horfur út árið 2025
Núna stefnir í að umferðin geti aukist um tæp 3% á milli ára. Meðalumferðaraukning á ári, milli áranna 2005 til 2024, innan hbsvæðis, er um 2,4%.
Fyrirvari: Öll gögn úr umferðarteljurum eru grófrýnd og geta því tekið breytingu við endanlega yfirferð.
Höfuðborgarsvæðið-samanlagt-júlí
Höfuðborgarsvæðið-hlutfall-júlí
Höfuðborgarsvæðið-vikudagar-júlí
Höfuðborgarsvæðið-mánuðir-júlí
Höfuðborgarsvæðið-vísitala-júlí