Umferðarljós við fjölfarin gatnamót
Vegagerðin og Seltjarnarnesbær hafa unnið saman að framkvæmdum vegna umferðarljósa við gatnamót Nesvegar og Suðurstrandar.
Umferðarljós sem stýra umferð um gatnamót Suðurstrandar og Nesvegar voru nýlega uppfærð í því skyni að auka umferðaröryggi, ekki síst fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur sem þvera gatnamótin. Töluverð umferð barna á leið í skóla og frístundir er um gatnamótin sem undirstrikar mikilvægi þess að þau séu útfærð á sem öruggastan hátt.
Ljósin eru orðin virk og verið er að leggja lokahönd á yfirborðsfrágang. Veðrið og árstíminn hefur áhrif á lokafrágang sem á að klárast í vor. VSÓ ráðgjöf sá um hönnun og veitti ráðgjöf í verkefninu.