3. október 2026
Umferð hleypt á nýjan Arnar­nesveg á mánu­daginn

Opnað verður fyrir umferð um nýjan Arnarnesveg, milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar, mánudaginn 5. október kl. 14:00. Svæðið er enn vinnusvæði því það standa yfir framkvæmdir við nýtt hringtorg við mót Arnarnesvegar og Rjúpnavegar og einnig nærliggjandi göngu- og hjólastíg. Búast má við einhverjum umferðartöfum. Ökumenn eru beðnir um aka með sérstakri gát og sýna tillitssemi.

Opnað verður fyrir umferð um nýjan Arnarnesveg á mánudaginn.

Opnað verður fyrir umferð um nýjan Arnarnesveg á mánudaginn.

Opnunin markar mikilvægan áfanga í framkvæmdum vegna nýs Arnarnesvegar, sem nú eru langt komnar en gert er ráð fyrir að þeim ljúki í kringum mánaðarmótin nóvember-desember.

Unnið hefur verið að því að tengja nýju vegamannvirkin inn á núverandi akbrautir sem umferð er á og óhjákvæmilega hefur það valdið truflun á umferð.

Unnið við nýtt hringtorg

Við vegamót Arnarnesvegar og Rjúpnavegar standa yfir framkvæmdir við nýtt hringtorg sem tengir nýja hluta Arnarnesvegar við þann eldri. Búið er að malbika um helming hringtorgsins og færa umferð yfir á þann hluta. Nú er unnið við hinn helming torgsins og áætlað að hægt verið að opna það að fullu um næstu mánaðarmót.

Undanfarið hefur verið unnið við breytingar á vegamótum Breiðholtsbrautar og Vatnsendahvarfs og er sú vinna langt komin. Eftir breytingarnar verður opið fyrir umferð um hægri beygju inn og út af Vatnsendavegi á Breiðholtsbraut.

Þá hefur verið unnið við tvöföldun Breiðholtsbrautar á móts við vegamótin til norðurs að Elliðaám. Í síðustu viku var sá kafli malbikaður. Áætlað er að þessum verkþáttum ljúki um næstu mánaðarmót og verða þá allar akreinar sem tengjast vegamótum að nýju brúnni yfir Breiðholtsbraut opnaðar.

Jafnframt er unnið við stækkun ofanvatnstjarnar milli Breiðholtsbrautar og Ögurhvarfs en ofanvatni verður veitt í hana af þessu stækkaða vegyfirborði.

Á nýjum Arnarnesvegi, milli Vatnsendavegar og Rjúpnavegar, er unnið við frágang vegfláa, veglýsingar og vegriða.

Undirgöng á lokametrunum

Samhliða þessum framkvæmdum er unnið við frágang nýju undirganganna á Arnarnesvegi norðan við Rjúpnaveg og malbikun göngu- og hjólastíganna við undirgöngin og þaðan meðfram Arnarnesvegi að nýju brúnni yfir Breiðholtsbraut. Áformað er að opna göngu- og hjólastígana fyrir umferð fyrstu vikuna í nóvember.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar, hraðatakmarkanir og sýna aðgát við framkvæmdasvæðið.

Áætluð verklok Arnarnesvegar og tengdum framkvæmdum eru í nóvember 2026.

Arnarnesvegur (411), 3. áfangi, milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar, er hluti af Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins þar sem lögð er áhersla á að bæta innviði fyrir fjölbreytta ferðamáta og skapa öruggari leiðir um höfuðborgarsvæðið.

Verkefnið er unnið í samstarfi Vegagerðarinnar, Betri samgangna, Reykjavíkurborgar og Kópavogs.Veitna og Mílu. 

Verktakar eru Loftorka og Suðurverk.

Eftirlit er í höndum VSB. 

Ljósmyndir / Vilhelm Gunnarsson  

Áætlað er að framkvæmdum ljúki um mánaðarmótin nóvember-desember.

Áætlað er að framkvæmdum ljúki um mánaðarmótin nóvember-desember.

Svæðið er enn framkvæmdasvæði.

Svæðið er enn framkvæmdasvæði.