Umferð dróst talsvert saman á Hringveginum í október
Umferðin á Hringvegi í október dróst talsvert mikið saman eða um 2,5 prósent. Þetta er annar mánuðurinn í röð þar sem umferð minnkar og fjórði mánuðurinn á árinu. Nú er útlit fyrir að umferðin í ár aukist lítillega eða um 0,5-1,0 prósent sem er mun minna en umferðin hefur aukist að meðaltali liðin ár.
Milli mánaða 2024 og 2025
Talsverður samdráttur, varð í umferð um Hringveginn, í nýliðnum mánuði, ef marka má 16 lykilteljara á Hringvegi (2,5%). Samdráttur varð í þremur landssvæðum af fimm. Mest dróst umferð saman um Suðurland (-5,1%) en umferð jókst um Vesturland (1,6%) og Norðurland (3,8%).
Mest dróst umferð saman um mælisnið á Mýrdalssandi (-9,2%) en mest jókst umferð um mælisnið á Holtavörðuheiði (6,8%).

Samanburðartafla október
Frá ármótum 2024 og 2025
Nú hefur uppsöfnuð umferð aðeins aukist um 0,6%, sem er sex sinnum minni aukning en mældist á sama tíma á síðasta ári (3,6%). Teljarar á og í grennd við höfuðborgarsvæðið sýna mestan samdrátt, frá áramótum (-1,8%) en teljarar á Norðurlandi sýna mestu aukninguna, fyrir sama tímabil (7,3%).
Umferð eftir vikudögum
Frá ármótum er mest ekið á föstudögum, en minnst á laugardögum. Umferð hefur dregist saman á sunnu- og þriðjudögum en aukist lítillega aðra vikudaga þar af mest á mánudögum (2,1%).
Horfur út árið 2025
Nú þegar aðeins tveir mánuðir, eru eftir af árinu 2025, verður að teljast afar líklegt að umferð muni ekki aukast meira en um 0,5-1,0%, sem yrði þá langt undir meðalaukningu liðinna ára, sem er 3,2%.
Athugið!
Um er að ræða grófrýndar umferðartölur, sem gætu tekið breytingum við endanlega yfirferð.
Slóð inn á talnaefni: https://www.vegagerdin.is/samgongukerfid/vegakerfid/umferdartolur

Hringvegur-hlutfall-október

Hringvegur-mánuðir-október

Hringvegur-samanlagt-október

Hringvegur-vikudagar-október

Hringvegur-vísitala-október