Umferðin í mars á höfuðborgarsvæðinu dróst saman um nærri þrjú prósent í mars mánuði. Þetta er töluverður samdráttur en minni en sá sem mældist á Hringivegi í sama mánuði. Ýmsar ástæður liggja eflaust að baki en til dæmis er líklegt að erfitt tíðarfar hafi leitt til samdráttar. Það má sjá á miklu minni umferð óveðursdaginn 26. mars.
Milli mánaða 2025 og 2026
Talsverður samdráttur varð í umferð á höfuðborgarsvæðinu, í mars miðað við sama mánuð á síðasta ári ef marka má þrjú lykil mælisnið Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu. Alls mældist um 2,8% samdráttur, fyrir mælisniðin þrjú. Þetta er í takt við það sem gerðist á Hringvegi en er þó heldur minni samdráttur.
Öll sniðin þrjú sýndu samdrátt en mest dróst umferð saman um mælisnið ofan Ártúnsbrekku (-4,9%) og minnst um mælisnið á Reykjanesbraut (-1,4%).
Umferð eftir vikudögum 2026
Mesta umferðin var á miðvikudögum en minnst var ekið á sunnudögum, í mars mánuði.
Umferð dróst saman í öllum vikudögum en mest á fimmtudögum. En fimmtudaginn 26. mars sl. dróst umferð saman um 40% vegna óveðurs, sem þá gekk yfir höfuðborgarsvæðið.
Umferð frá áramótum
Nú hefur umferð dregist saman um 0,3%, frá áramótum, en leita þarf aftur til ársins 2022 til að finna samdrátt, í umferðinni á þessu tímabili.
Hlekkur á talnaefni: https://www.vegagerdin.is/vegagerdin/gagnasafn/umferdartolur/tolfraedi-umferdar/3-lykilteljarar-a-hofudborgarsvaedinu-2025
Fyrirvari:
Allar umferðartölur eru grófrýndar, sem þýðir að þær geta tekið breytingum, við endanlega yfirferð.

Hb-hlutfall-mars

Hb-samanlagt-mars

Hb-mánuðir-mars

Hb-vísitala-mars

Hb-vikudagar-mars