3. júní 2026
Umferð á Hring­vegi dregst saman þriðja mánuð­inn í röð

Umferðin á Hringveginum í maí dróst lítillega saman miðað við sama mánuð fyrir ári. Þótt samdrátturinn nú sé lítill er afar óvenjulegt að umferð minnki þrjá mánuði í röð eins reyndin er nú í ársbyrjun 2026. Hagi umferðin sér einsog í meðalári má búast við um þriggja prósenta meiri umferð í ár, en ef samdráttarþróunin helst áfram gæti það breyst.

Umferð milli mánaða 2025 og 2026
Nú er áætlað að umferð hafi dregist saman um 0,5% milli maí mánaða 2025 og 2026, yfir 16 lykilteljara á Hringvegi.  Umferð dregst saman í þremur svæðum af fimm og mest um Suðurland eða um 3,2%. Umferð eykst talsvert um Norðurland eða um 4%.

Af einstaka talningasniðum mælist mesti samdrátturinn um Hringveginn við Hvolsvöll eða um 5,2%.  Mest eykst umferð um mælsnið í Kræklingahlíð, norðan Akureyrar, eða um tæp 6%.

Maí mánuður er þriðji mánuðurinn í röð, þar sem teljarar Vegagerðarinnar sína samdrátt í umferð á Hringveginum.  Það er ekki óalgengt að umferð dragist saman milli ára í einstaka mánuðum, en sjaldgæft að það gerist þrjá mánuði í röð.  Þegar slíkt hefur gerst hefur það gjarnan verið verið vísbending um samdrátt í hagkerfinu.

 

Samanburðartafla-maí

Samanburðartafla-maí

Frá áramótum
Nú er uppssafnaður ökutækjafjöldi, frá áramótum, aðeins 0,3% meiri en hann var á síðasta ári.  Þetta er minnsta aukning í um 6 ár.

Uppsöfnuð umferð er minni um Suðurland, Vesturland og Austurland, en á sama tíma á síðasta ári, en jákvæðu megin við núllið um og  við höfuðborgarsvæðið og Norðurland.

Umferð eftir vikudögum
Frá áramótum er mest ekið á föstudögum en minnst á laugardögum.

Umferð hefur aukist á þriðju-, miðviku-, og sunnudögum, að meðaltali um rúm 2%, en dregist saman aðra vikudaga um rúmt eitt prósentustig, að meðaltali

Horfur út árið 2026
Eins og staðan er í dag, og ef umferð hegðar sér það sem eftir lifir ársins eins og í meðalári, má búast við um 3% aukningu í umferð.  Það verður því afar fróðlegt að fylgjast með þróun umferðar næstu mánuði til að sjá hvort þessi samdráttarþróun haldi áfram eða ekki.

 

 

Fyrirvari:  Þessar upplýsingar eru byggðar á grófrýndum umferðartölum.  Í þeim geta leynst villur t.d. vegna bilunar í búnaði, sem ekki sést  fyrr en í endanlegri yfirferð umferðartalna.

Slóð inn á talnaefni: https://www.vegagerdin.is/vegagerdin/gagnasafn/umferdartolur/tolfraedi-umferdar/16-lykilteljarar-a-hringvegi-2026

Hringvegur-samanlagt-maí

Hringvegur-samanlagt-maí

Hringvegur-hlutfall-maí

Hringvegur-hlutfall-maí

Hringvegur-vikudagar-maí

Hringvegur-vikudagar-maí

Hringvegur-mánuðir-maí

Hringvegur-mánuðir-maí

Hringvegur-vísitala-maí

Hringvegur-vísitala-maí