Við notum vafrakökur á þessari vefsíðu
Við notum vafrakökur til að safna og greina upplýsingar um notkun og virkni vefsíðunnar, til að geta notað lausnir frá samfélagsmiðlum og til að bæta efni og birta viðeigandi markaðsefni.
Vafrakökum sem eru notaðar á þessum vef er skipt í flokka og fyrir neðan geturðu lesið um hvern þeirra og leyft eða hafnað ákveðnum eða öllum flokkum. Ef flokki sem hafði áður verið leyfður er hafnað er öllum vafrakökum í þeim flokki eytt út úr vafranum þínum. Til viðbótar geturðu séð lista yfir kökur í hverjum flokki og ítarlegar upplýsingar í vafrakökuyfirlýsingunni.
Nauðsynlegar kökur
Sumar kökur eru nauðsynlegar fyrir grunnvirkni vefsíðunnar. Vefsíðan mun ekki virki rétt án þessara vafrakaka og þær eru því sjálfkrafa virkar og ekki hægt að hafna þeim.
Tölfræðikökur
Tölfræðikökur hjálpa okkur að bæta vefsíðuna með því að safna og greina upplýsingum um notkun hennar.
Vafrakökum sem eru notaðar á þessum vef er skipt í flokka og fyrir neðan geturðu lesið um hvern þeirra og leyft eða hafnað ákveðnum eða öllum flokkum. Ef flokki sem hafði áður verið leyfður er hafnað er öllum vafrakökum í þeim flokki eytt út úr vafranum þínum. Til viðbótar geturðu séð lista yfir kökur í hverjum flokki og ítarlegar upplýsingar í vafrakökuyfirlýsingunni.
Nauðsynlegar kökur
Sumar kökur eru nauðsynlegar fyrir grunnvirkni vefsíðunnar. Vefsíðan mun ekki virki rétt án þessara vafrakaka og þær eru því sjálfkrafa virkar og ekki hægt að hafna þeim.
Nafn | Lén | Slóð | Rennur út | Merki |
---|---|---|---|---|
bokunSessionId_60bdc944-20fc-44e5-9c45-04c37d2f6bf3 | www.vegagerdin.is | / | 1 klukkutími | |
__cf_bm | .vimeo.com | / | 1 klukkutími | Þriðji aðili |
The __cf_bm cookie supports Cloudflare Bot Management by managing incoming traffic that matches criteria associated with bots. The cookie does not collect any personal data, and any information collected is subject to one-way encryption. | ||||
_cfuvid | .vimeo.com | / | Vafra lokað | Þriðji aðili |
Used by Cloudflare WAF to distinguish individual users who share the same IP address and apply rate limits | ||||
cookiehub | .vegagerdin.is | / | 365 dagar | |
Used by CookieHub to store information about whether visitors have given or declined the use of cookie categories used on the site. |
Tölfræðikökur
Tölfræðikökur hjálpa okkur að bæta vefsíðuna með því að safna og greina upplýsingum um notkun hennar.
Nafn | Lén | Slóð | Rennur út | Merki |
---|
Tvöföldun Suðurlandsvegar við Lögbergsbrekku
Unnið er að viðbót við fyrsta áfanga í breikkun Hringvegar frá Fossvöllum að Lögbergsbrekku. Vinnu við fyrsta áfanga, sem er um 3,3 km langur vegkafli, lauk sumarið 2023 en nú er unnið að viðbót við fyrsta áfanga sem felur í sér breikkun á 950 metra kafla frá Lögbergsbrekku og að Gunnarshólma, gerð hliðfærðra T-vegamóta auk hliðarvega. Tengingum inn á Hringveg fækkar og þar með eykst öryggi vegfarenda.
Fyrsti hluti verkefnisins bar heitið Hringvegur (1) Fossvellir – Lögbergsbrekka. Verkið snerist um tvöföldun Suðurlandsvegarins frá fjögurra akreina vegi á Fossvöllum og vestur fyrir Lögbergsbrekku ásamt hliðarvegum. Lengd útboðskaflans var um 3,3 km.
Tilboð í verkið voru opnuð 13. júlí 2021. Samið var við Jarðval sf. og Bjössa ehf. sem áttu lægsta tilboð í verkið. Mannvit sá um eftirlit með verkinu en verkfræðistofan Hnit sá um hönnun.
Í verkinu fólst bygging tveggja akreina norðan við núverandi veg með 11 m miðdeili, en það þýðir að 11 metrar eru milli akbrauta sem liggja í gagnstæðar áttir. Ofanvatnsræsi voru lengd og byggð undirgöng fyrir ríðandi umferð. Göngin eru um 50 m löng, 4,5 m breið og um 4,0 m há. Þau eru bogalaga úr báruðum galvanhúðuðum stálplötum sem eru boltaðar saman í boga. Að reiðgöngunum var lagður nýr reiðstígur, um 380 m langur.
Vegtenging að Waldorfskóla var breytt í þessum áfanga en tengingin var færð niður í Lækjarbotna. Vegurinn að Waldorfskóla er 1,2 km að lengd og klæddur bundnu slitlagi.
Ákveðið var að bæta við verkið 950 metra kafla frá Lögbergsbrekku og að Gunnarshólma, gerð hliðfærðra T-vegamóta og hliðarvegum.
Framkvæmdir hófust sumarið 2023. Útbúin verða tvö ný gatnamót á leiðinni til að fækka tengingum inn á þjóðveginn, en við þessa framkvæmd munu fimm tengingar sameinast í eina en það var eitt af meginmarkmiðum framkvæmdarinnar, að fækka tengingum, til að auka umferðaröryggi.
Einnig voru gatnamótin að Lækjarbotnum og þar með Waldorfskóla færð vestar. Tengingin frá Hringvegi er 220 metrar.
Verklok eru áætluð sumarið 2024.
Þessi grein birtist fyrst í Framkvæmdafréttum 6. tbl. 2023, nr. 728. Áskrift að Framkvæmdafréttum er frí og hægt að gerast áskrifandi með því að senda póst á askrift@vegagerdin.is
Unnið að malbikun Suðurlandsvegar í fyrsta áfanga verksins sem lauk sumarið 2023.
Framkvæmdir við Lögbergsbrekku.