9. september 2026
Tölu­vert mikil aukn­ing umferðar á Hring­vegi í ágúst

Í nýliðnum ágústmánuði jókst umferðin á Hringveginum um 4,5 prósent. Umferðin hefur ekki áður mælst jafn mikil í ágúst. Umferðin dróst saman á vormánuðum, í mars, apríl og maí en hefur annars aukist. Reikna má með að sólmyrkinn 12. ágúst hafi leitt til einhverra aukningar. Búast má við að umferðin í ár muni aukast í heild um 2,6 prósent á Hringveginum.

Milli mánaða 2025 og 2026
Umferðin í ágúst á Hringveginum jókst um 4,5%. Aldrei hefur áður mælst jafn mikil umferð í ágúst mánuði á Hringveginum. Helsta ástæða þess að meiri aukning mælist nú en í fyrri mánuðum kann að eiga sér skýringu í aukinni umferð vegna almyrkvans, sem var 12.ágúst.

Mest jókst umferðin yfir mælisnið á og í grennd við höfuðborgarsvæðið eða um 9,4% en samdráttur var um 7,4% á Austurlandi.

Samanburðartafla-ágúst

Frá áramótum
Núna hefur umferð aukist um 1,7% frá áramótum sem er sama aukning og varð á þessum tíma á síðasta ári.

Mest hefur umferð aukist á og í grennd við höfuðborgarsvæðið, en minnst á Vesturlandi.

Umferð eftir vikudögum
Það sem af er ári hefur mest verið ekið á föstudögum en minnst á laugardögum.

Hlutfallslega hefur umferð aukist mest á sunnudögum en um 2% samdráttur varð í umferð á mánudögum.

Horfur út árið 2026
Eins og staðan er í dag, og ef umferð hegðar sér, það sem eftir lifir árs, eins og í meðalári, má búast við um 2,6% aukningu í umferð. Það verður því fróðlegt að fylgjast með þróun umferðar næstu mánuði til að sjá hvort þessi spá gengur upp.

Athygli er vakin á því að öll gögn eru grófrýnd, sem gætu tekið breytingum, við endanlega yfirferð.

Hringvegur-samanlagt-ágúst

Hringvegur-samanlagt-ágúst

Hringvegur-hlutfall-ágúst

Hringvegur-hlutfall-ágúst

Hringvegur-vikudagar-ágúst

Hringvegur-vikudagar-ágúst

Hringvegur-vísitala-ágúst

Hringvegur-vísitala-ágúst

Hringvegur-vísitala-ágúst

Hringvegur-vísitala-ágúst