Frestur til að skila inn tilboðum í nýbyggingu Búðafossvegar, á um 7,4 km löngum kafla frá Þjórsárdalsvegi í Skeiða- og Gnúpverjahreppi að Landvegi í Rangárþingi ytra, hefur verið framlengdur um einn sólarhring. Nýr tilboðsfrestur er til miðvikudagsins 23. september og skal tilboðum skilað inn fyrir klukkan 14:00.
Framlenging tilboðsfrests reyndist nauðsynleg vegna tæknilegra erfiðleika sem komu upp í tengslum við útboðið. Nánari upplýsingar um útboðið má finna hér:
https://www.vegagerdin.is/verkefnin/utbod/budafossvegur-23-thjorsardalsvegur-landvegur

Búðafossvegur.