Hringvegur (1) við veitingastaðinn Baulu í Borgarfirði verður malbikaður í næstu viku. Um er að ræða 1,6 kílómetra langan kafla sem nær frá Gljúfurárbrú og um 1 km fram yfir gatnamót Borgarfjarðarbrautar (50) í norður.

Vegagerðin stefnir að því að malbika fleiri klæðingarkafla á Hringveginum (1) frá Borgarnesi á næstu árum.
Töluvert var um bikblæðingar á þessum kafla síðasta sumar en nú verður ráðist í malbikun á honum í því skyni að fyrirbyggja slíkar blæðingar og bæta ástand vegarins. Að öllu jöfnu er bundna slitlagið á Hringveginum á þessu svæði klæðing.
Vegagerðin stefnir jafnframt að því að malbika fleiri klæðingarkafla á Hringveginum (1) frá Borgarnesi á næstu árum. Framkvæmdin við Baulu er liður í áframhaldandi uppbygginu og viðhaldi vegarins á þessum hluta Hringvegarins (1).
Áætlað er að malbika aðfararnótt þriðjudagsins 26. ágúst. Meðan unnið verður við malbikun verður umferðarstýring á svæðinu og hjáleiðir verða sérstaklega merktar. Nánari upplýsingar verður að finna á Umferðin.is.

Nokkuð hefur verið um bikblæðingar á kaflanum.

Þessi kafli verður malbikaður í næstu viku.