Unnið er að því að malbika á Suðurlandsvegi við Hólmsá sem er umferðarmikill kafli Hringvegarins. Miklar umferðartafir urðu vegna þessara framkvæmda í dag en umferðin var þyngri en áætlað var. Því var ákveðið að malbika aðeins aðra akreinina og fresta útlögn á hina akreinina þar til í kvöld.
Umferð verður hleypt á nýmalbikaða akreinina um kl. 16 í dag. Þá verður tekið hlé en vinna við seinni akreinina hefst kl. 19. Fyrir því eru nokkrar ástæður. Skoðað var að fresta vinnu við þá akrein um nokkra daga en fallið var frá því. Þegar rætt er um næturvinnu í þessu tilviki hefst vinna iðulega kl. 19 og lýkur um nóttina og ætti ef til vill frekar að tala um kvöldvinnu.
Ekki er talið heppilegt að bíða með þessa malbikun, m.a. þar sem kantur sem varð til við framkvæmdirnar í dag skapar hættu en hann hverfur þegar seinni akreinin hefur verið lögð; hitastig lækkar hratt og má reikna með að það verði ekki nema 5 gráður um kl. 23 þegar sól sest, það dimmir og kólnar hratt og birtuskilyrði versna. Ekki er ráðlagt að malbika við slíkar aðstæður þar sem hitastig er lágt því það getur komið niður á gæðum malbiksins og endingu þess. Auk þess eru öll tæki nú þegar á staðnum sem styttir heildar verktímann.
Kaflinn sem er malbikaður núna er 1150 m langur og tekur um fjóra klukkutíma að leggja út malbikið. Síðan bætist við frágangur og kólnun áður en hægt er að hleypa umferðinni á kaflann.
Framkvæmdir þessar eru nauðsynlegt reglubundið viðhald og verður ekki hjá þeim komist. Ákveðið var að ráðast í þær núna, áður en mesta sumarumferðin hefst.

Malbikun á Suðurlandsvegi við Hómlsá

Malbikun á Suðurlandsvegi við Hómlsá

Malbikun á Suðurlandsvegi við Hómlsá