Framkvæmdir við Hringveg (1) um Ölfusá ganga vel. Steypu nýrrar vegbrúar austan við Selfoss er lokið og samsetning stálbita nýrrar Ölfusárbrúar er á áætlun.

Hringvegur um Ölfusá. Hér sést lega nýja Hringvegarins framhjá Selfossi.
Allir stálbitar í brúargrind nýrrar Ölfusárbrúar hafa nú verið fluttir til landsins. Skipið sem flutti seinni hluta stálbitanna kom til Þorlákshafnar 4. júní og hefur megnið af bitunum þegar verið flutt á verkstað austan árinnar.
Þar er unnið að samsetningu brúarinnar. Tengingar eru rafsoðnar og að því loknu er yfirborðið sandblásið, galvaniserað og málað með grunni og lokamálningu.
Samhliða samsetningu stálbitanna er unnið að frágangi lagnakerfis í brúargrindinni. Í brúna verða lagðar lagnir fyrir heitt og kalt vatn, háspennustrengi og ljósleiðara. Öllum lögnum verður komið fyrir áður en brúargrindin verður færð yfir ána.
Búið er að steypa undirstöður landstöpla Ölfusárbrúar og unnið er við uppslátt stöplanna. Í Efri-Laugardælaeyju hefur neðri hluti undirstaða brúarturnsins verið steyptur og nú er unnið að uppslætti og járnbendingu fyrir efri hluta þeirra.
Áætlað er að stálið í brúarturninn verði flutt til landsins í ágúst. Það er framleitt í verksmiðjum Norvik í Póllandi.
Austan við Selfoss er unnið að byggingu vegbrúar yfir nýjan hluta Hringvegar. Frá henni verða tengingar að golfvellinum og Laugardælum annars vegar og Gaulverjabæjarvegi hins vegar. Uppsteypu brúarinnar er lokið og nú er unnið að gerð sigplatna og frágangi.
Jarðvegsskipti og gerð lagnaskurða austan Ölfusár eru komin vel á veg og stefnt er að því að hefja fljótlega útlögn styrktar- og burðarlaga undir malbik.
Vestan Ölfusár er áfram unnið að fergingu vegstæðisins í Hellismýri á um 700 metra löngum kafla og þarf fargið að standa fram á næsta ár. Vestan við mýrina er jafnframt unnið við skeringar í vegstæði, jarðvinnu fyrir undirgöng undir Hringveg við Einholtsveg, gröft lagnaskurða og tilfærslu lagna veitustofnana.
Um 65 starfsmenn vinna nú á framkvæmdasvæðinu.
Af öryggisástæðum er öll óviðkomandi umferð um framkvæmdasvæðið óheimil. Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og aka varlega.
Áætlað er að brúin verði tilbúin haustið 2028.

Hringvegur um Ölfusá. Vegbrú austan við Selfoss.

Hringvegur um Ölfusá. Hér sést lega nýja Hringvegarins framhjá Selfossi.

Hringvegur um Ölfusá. Ný brú yfir Ölfusá liggur um Efri-Laugardælaeyju.

Hringvegur um Ölfusá. Vegbrú austan við Selfoss.

Hringvegur um Ölfusá. Unnið er að samsetningu stálbita nýju brúarinnar.

Samhliða samsetningu stálbitanna er unnið að frágangi lagnakerfis í brúargrindinni.