13. júlí 2026
Stál­virki Ölfusár­brúar tekur á sig mynd – mynd­band

Framkvæmdir við nýja brú yfir Ölfusá ganga vel en í lok júní var verktaki um það bil hálfnaður með uppsetningu á bitum í brúna. Í nýju myndbandi er rætt við Hjört Frey Jóhannsson, verkefnastjóra ÞG verktaka, og Höskuld Tryggvason, verkefnastjóra hjá Vegagerðinni, um stöðu framkvæmda.

Frá framkvæmdum við stálvirki Ölfusárbrúar.

Frá framkvæmdum við stálvirki Ölfusárbrúar.

Til að sjóða saman bita brúarinnar þurfa aðstæður að vera sem bestar. Því voru smíðuð færanleg skýli sem sett eru yfir allar tengingar meðan verið er að sjóða saman bita og mála. Um sextíu manns koma að framkvæmdinni í sumar og sinna fjölbreyttum verkefnum.

Stefnt er að því að hífa brúna yfir ána um mánaðarmótin ágúst-september. Hjörtur Freyr segir mikið verk að flytja svo stóra brú og það taki um tíu til tólf daga. Hann lýsir aðferðafræðinni í myndbandinu. Hann segir verkið annars hafa gengið frábærlega enda hafi veðrið leikið við starfsfólk.