20. mars 2026
Stál­bitar í Ölfusár­brú á leið til lands­ins

Góður gangur er í framkvæmd við Hringveg (1) um Ölfusá eins og sjá má á myndum sem teknar voru í vikunni. Um næstu helgi er áætlað að fyrsta skip með stálbitum sem notaðir verða í sjálfa Ölfusárbrú komi til landsins.

Hér sést hvernig nýr Hringvegur mun liggja yfir Ölfusá og tengjast eldri Hringvegi austan við Selfoss.

Hér sést hvernig nýr Hringvegur mun liggja yfir Ölfusá og tengjast eldri Hringvegi austan við Selfoss.

Staða framkvæmda við Ölfusárbrú og tengda vegagerð er að nú er lokið við að steypa undirstöður landstöpla Ölfusárbrúar og unnið við uppslátt stöpla ofan á þær. Í Laugardælaeyju er lokið fyllingu og steypu þrifalags og unnið við uppslátt og járnbendingu fyrir undirstöðu turnsins sem mun rísa í eyjunni.

Austan við Selfoss er unnið við byggingu vegbrúar sem reist verður yfir nýja hluta Hringvegarins. Þaðan verða vegtengingar að golfvellinum og Laugardælum annars vegar og hins vegar að Gaulverjabæjarvegi. Lokið er við uppsteypu stöpla brúarinnar og nú unnið við undirslátt brúardekksins sem áætlað er að steypa um næstu mánaðarmót.

Vinna við jarðvegsskipti og lagnaskurði í vegstæðinu austan við Ölfusá er komin vel á veg fyrir utan styrktar- og burðarlög sem ekki er byrjað á.

Vestan Ölfusár er unnið við fergingar vegstæðisins í Hellismýri á um 700 m löngum kafla. Fargið er nú komið í um hálfs meters hæð yfir endanlegt vegyfirborð en eftir er að bæta um 1,5 m fyllingu ofan á það. Vestan við mýrina er unnið við skeringar í vegstæði, gröft lagnaskurða og tilfærslu lagna veitustofnana.

Stálbitar í brú fluttir til Þorlákshafnar

Um næstu helgi er áætlað að fyrsta skipið með stálbitum í Ölfusárbrú komi til Þorlákshafnar. Skipið siglir frá Gdansk en stálbitarnir eru framleiddir í verksmiðjum Norvik í Póllandi. Með þessu fyrsta skipi koma um það bil helmingur af þeim bitum sem fara í burðargrind brúarinnar. ÞG-Verk hefur samið við Atlantik skipafélagið um flutninginn.

Áætlað er að um tvo daga taki að afferma skipið og um leið hefst flutningu á verkstað austan við ána. Þar verður bitunum stillt upp og í framhaldi hefst vinna við samsetningu brúarinnar.

Gert er ráð fyrir að fjölga starfsfólki um 20 vegna þessarar vinnu, en fyrir eru um 40 starfsmenn á framkvæmdasvæðinu.

Myndirnar tók ljósmyndarinn Anton Brink

Vegstæðið horft til vesturs yfir Ölfusá.

Vegstæðið horft til vesturs yfir Ölfusá.

Í Laugardælaeyju er lokið fyllingu og steypu þrifalags og unnið við uppslátt og járnbendingu fyrir undirstöðu turnsins sem mun rísa í eyjunni.

Í Laugardælaeyju er lokið fyllingu og steypu þrifalags og unnið við uppslátt og járnbendingu fyrir undirstöðu turnsins sem mun rísa í eyjunni.

Búið er að steypa undirstöður landstöpla Ölfusárbrúar og unnið við uppslátt stöpla ofan á þær.

Búið er að steypa undirstöður landstöpla Ölfusárbrúar og unnið við uppslátt stöpla ofan á þær.

Austan við Selfoss er unnið við byggingu vegbrúar sem reist verður yfir nýja hluta Hringvegarins. Lokið er við uppsteypu stöpla brúarinnar og nú unnið við undirslátt brúardekksins sem áætlað er að steypa um næstu mánaðarmót.

Vegbrúin austan við Selfoss séð úr lofti.

Vegbrúin austan við Selfoss séð úr lofti.