18. nóvember 2026
Sprungu- og lagna­viðgerð­ir í Grinda­vík langt komnar

Frá ágúst 2024 hefur Vegagerðin annast umfangsmiklar framkvæmdir í Grindavík fyrir hönd Framkvæmdanefndar vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ, Grindavíkurnefndar. Verkefnin hafa verið unnin samkvæmt aðgerðaráætlunum nefndarinnar og náð til viðgerða á sprungusvæðum, götum, lögnum, opnum svæðum og öðrum innviðum víðs vegar um bæinn.*

Rífa þurfti nokkrar byggingar við Víkurbraut.

Rífa þurfti nokkrar byggingar við Víkurbraut.

Þessi grein birtist fyrst í Framkvæmdafréttum 4.tbl nr. 741 árg. 2026.

Jarðhræringarnar sem hófust árið 2023 sköpuðu áður óþekkta stöðu innan þéttbýlis í Grindavík. Sprungur, landsig og holrými mynduðust víða og ollu miklu tjóni á innviðum og byggð. Til að mæta þessari stöðu voru settar fram aðgerðaráætlanir um viðgerðir og uppbyggingu innviða.

Fram til þessa nemur kostnaður vegna framkvæmda samkvæmt aðgerðaráætlunum 1 og 2 samtals um einum milljarði króna.

Aðgerðaráætlun 1

Fyrsta aðgerðaráætlunin var lögð fram sumarið 2024 og hafði það markmið að bæta öryggi innan bæjarins, tryggja aðgengi að helstu samgönguleiðum og skapa forsendur fyrir áframhaldandi atvinnustarfsemi og þjónustu. Verkefnin fólust meðal annars í viðgerðum á götum, lögnum og opnum sprungusvæðum, uppsetningu öryggisgirðinga, sjóvörnum, jarðkönnun og áhættumati.

Vegagerðin tók að sér hlutverk verkkaupa í umboði Grindavíkurnefndar og vann verkefnið í nánu samstarfi við framkvæmdateymi sem samhæfði framkvæmdir, öryggismál og kostnaðareftirlit.

Megináherslan var á að gera helstu samgönguleiðir öruggar, girða af hættusvæði og ráðast í fyrstu umfangsmiklu sprunguviðgerðirnar. Með þessum aðgerðum varð mögulegt að opna Grindavík aftur fyrir almenningi í október 2024 eftir að helstu umferðarleiðir höfðu verið lagfærðar og hættuleg svæði girt af.

Aðgerðaráætlun 2

Í framhaldi af fyrstu aðgerðunum vann Grindavíkurnefnd aðgerðaráætlun 2 sem felur í sér áframhaldandi viðgerðir á opnum sprungusvæðum og innan lóða, frekari jarðkönnun og áframhaldandi uppbyggingu innviða. Heildarkostnaður við verkefni samkvæmt aðgerðaráætlun 2 er áætlaður um 886 milljónir króna og framkvæmdatími allt að 18 mánuðir.

Í september 2025 var undirritaður samningur milli Grindavíkurnefndar og Vegagerðarinnar þar sem Vegagerðin tók að sér framkvæmd áætlunarinnar, þar á meðal útboð, samningagerð, eftirlit og verkefnastjórn.

Gerður var rammasamningur við ellefu verktaka um sprungu- og lagnaviðgerðir og eru einstök verk boðin út í örútboðum meðal þeirra. Alls hafa 14 örútboð verið boðin út eða undirbúin.

Stór hluti framkvæmdanna þegar að baki

Sprunguviðgerðirnar eru nú komnar vel á veg og fjölda verkefna er lokið. Þar á meðal eru framkvæmdir við Hópsskóla, íþróttahúsið, Efrahóp, Bröttuhlíð, Ufsasund, Austurveg og Mánagötu, Staðarsund og Vörðusund auk verks við Víkurtún. Á nokkrum þessara svæða hefur verið hægt að fjarlægja öryggisgirðingar að loknum viðgerðum.

Fjöldi verkefna er enn í framkvæmd víðs vegar um bæinn, meðal annars við íþróttavöllinn, Spóahlíð, Norðurhóp, Austurhóp, Víkurbraut og Víkurhóp. Verkin eru mislangt komin og ráðast næstu skref sums staðar af niðurrifi mannvirkja eða frekari könnun á holrýmum.

Viðgerðirnar hafa jafnframt sýnt hversu erfitt getur verið að sjá fyrir aðstæður undir yfirborðinu. Við Víkurhóp fannst til dæmis stórt lárétt holrými til vesturs ásamt töluverðum opnunum. Þar þarf því að opna svæðið frekar og kanna umfang holrýmanna áður en viðgerð lýkur.

Viðgerðir niður á fast hraun

Viðgerðirnar felast ekki einfaldlega í því að fylla upp í sýnilegar sprungur á yfirborði. Laus jarðvegur, hraunkargi og eldri fyllingar eru fjarlægð og grafið niður að föstu hrauni. Sprungan er síðan hreinsuð og fyllt með grófu, fínefnasnauðu efni.

Ofan á fyllinguna eru lögð jarðvegsdúkur og eftir atvikum styrktarnet áður en hefðbundin uppbygging götu eða yfirborðs tekur við. Markmiðið er að gera viðgerðina nægilega sveigjanlega til að hún geti tekið við einhverjum frekari jarðhreyfingum án þess að yfirborðið brotni strax aftur.

Enn eru verkefni fram undan

Þótt stór hluti fyrirhugaðra sprunguviðgerða sé nú að baki eru enn verkefni fram undan. Stærstu svæðin sem eftir standa eru Vesturhóp og Hópsnes auk smærri verkefna á einkalóðum. Á sumum stöðum þarf fyrst að rífa mannvirki til að hægt sé að komast að sprungunum.

Einnig verður haldið áfram jarðkönnunum. Fyrir liggur minnisblað um Þorbjörn og næst stendur til að kanna Bótarsvæðið og svæðið frá efstu byggð að varnargörðum. Þá hefur verið ákveðið að skanna Grindavíkurbæ að nýju með LiDAR-skanna.

Framkvæmdir síðustu tveggja ára hafa ekki aðeins falist í viðgerðum á þekktum sprungum. Samhliða þeim hefur safnast mikil þekking á sprungusveimunum sem liggja um Grindavík, holrýmum undir yfirborði og því hvernig bregðast megi við aðstæðum sem eiga sér fá fordæmi í íslensku þéttbýli. Sú þekking nýtist bæði við þau verkefni sem eftir standa og áframhaldandi uppbyggingu innviða í Grindavík.

 

*Grindavíkurnefnd lauk störfum í byrjun árs og verkefnum hennar er nú stýrt í forsætisráðuneytinu.

Miklar sprungur mynduðust við Salthúsið.

Miklar sprungur mynduðust við Salthúsið.

Verkefnum sem er lokið

  • Víkurtún
  • Hópsskóli
  • Íþróttahús og Sólarvé
  • Efrahóp
  • Brattahlíð
  • Ufsasund
  • Austurvegur og Mánagata
  • Staðarsund og Vörðusund

Verkefni í vinnslu í september 2026

  • Fálkahlíð og Kríuhlíð
  • Íþróttavöllur: Unnið er að yfirfyllingum á eystri sprungunni og opnun þeirrar vestari. Einnig verður leitað nánar að holrými í möninni sem nefnt hefur verið „Pac-Man-holan“. Við Salthúsið er unnið að lokun gafls.
  • Spóahlíð: Búið er að opna sprunguna alla leið. Lítið holrými fannst neðarlega á svæðinu og var brugðist við því. Unnið er að uppbyggingu undir jarðvegsdúk og þegar hefur verið lagt yfir hluta svæðisins.
  • Norðurhóp: Búið er að opna allt framkvæmdasvæðið. Flutningur rafmagnskassa auðveldar áframhaldandi vinnu og verkið nálgast lok.
  • Austurhóp: Um helmingi verksins er lokið.
  • Víkurbraut: Unnið hefur verið á þremur lóðum frá Verkalýðshúsinu. Þar fundust ekki þau holrými sem búist hafði verið við og því verður opnað út frá þekktu holrými og unnið áfram þaðan.
  • Víkurhóp: Svæðið hefur verið opnað fram yfir Víkurhóp 20. Þar fannst stórt lárétt holrými til vesturs og nokkrar stórar opnanir. Opna þarf svæðið frekar til vesturs til að kanna og lagfæra holrýmin.
Myndin sýnir uppbyggingu viðgerðar.

Myndin sýnir uppbyggingu viðgerðar.

Fram undan

Við Garð og Hóp 1 þarf niðurrifsverkum að ljúka áður en sprunguviðgerðir geta hafist. Einnig er unnið að lausn vegna tveggja húsa við Víkurbraut svo hægt verði að ljúka niðurrifi og hefja þar viðgerðir. Grindavíkurbær hefur jafnframt hafið undirbúning að niðurrifi húsa við Vesturhóp 9, 10 og 30.

  • Viðgerðir við Vesturhóp og Hópsnes.
  • Skilgreining viðgerðar á sprungu ofan byggðarinnar á grundvelli jarðkönnunar.
  • Möguleg létt sprunguviðgerð við Hópssprungu samhliða stígagerð.
  • Einföld afmörkun við Stamphólsgjá og Strandhól.
  • Smærri verk á einkalóðum eftir því sem heimildir fást til niðurrifs eða sprunguviðgerða.
  • Frekari jarðkönnun á Bótarsvæðinu og milli efstu byggðar og varnargarða.
  • Endurtekin LiDAR-skönnun á Grindavíkurbæ til að kortleggja yfirborð og breytingar á því.
Framkvæmdir við Norðurhóp. Hér sést hversu nærri hraunið rann.

Framkvæmdir við Norðurhóp. Hér sést hversu nærri hraunið rann.

Viðgerð á smærri sprungum

Sprungur í austurhluta Grindavíkur eru yfirleitt yngri sprungur sem hafa jafnvel myndast í nýlegum atburðum. Þar eru þynnri hraun sem eru smástuðluð og eiga auðveldara með að brotna upp í minni blokkir sem brúa/loka sprungum betur. Hér er teikning af slíkri sprungu og dæmi um hvernig viðgerð hefur verið háttað.

Viðgerð á stærri sprungum

Fleygform efst í sprungu tryggir bogavirkni í fyllingu. Mikilvægt er að fylling sé án fínefna, þannig haldast steinarnir í fyllingunni í skorðum. Jarðtæknilegar styrkingar, dúkar og net eru notuð til að halda efninu ofan við á sínum stað. Verði hreyfing síðar getur fyllingarefni ekki hrunið niður og þar með er bogavirkni áfram viðhaldið. Þetta tryggir að viðgerðin er sveigjanleg og seig og yfirborð getur aflagast án þess að brotna.

Viðamiklar framkvæmdir við íþróttavöllinn í bænum.

Viðamiklar framkvæmdir við íþróttavöllinn í bænum.

Við Víkurhóp fannst stórt lárétt rými til vesturs og nokkrar stórar opnanir.

Við Víkurhóp fannst stórt lárétt rými til vesturs og nokkrar stórar opnanir.