2. maí 2025
Sniglar söfn­uðu fyrir vega­gerð

Sniglarnir, Bifhjólasamtök lýðveldisins, afhentu Vegagerðinni ágóða af dósasöfnun sinni þann 1. maí. Alls söfnuðust 400 þúsund krónur en fyrir það fást 10 metrar af malbiki eða 50 metrar af klæðingu.

Sniglarnir, Bifhjólasamtök lýðveldisins, afhentu Vegagerðinni ágóða af dósasöfnun sinni þann 1. maí.

Sniglarnir, Bifhjólasamtök lýðveldisins, afhentu Vegagerðinni ágóða af dósasöfnun sinni þann 1. maí.

Söfnunarátak Sniglanna bar yfirheitið „Veginn heilan heim“ og fór af stað í samstarfi við Endurvinnsluna í desember í fyrra. Tilgangurinn var að greiða niður 150 milljarða króna viðhaldsskuld á samgöngukerfinu.

Söfnunin var að mestu táknræn, enda meginmarkmið átaksins að vekja athygli á bágri stöðu á viðhaldi vega og þörf fyrir meira fé í uppbyggingu þjóðvega og annarra samgönguinnviða.

Þann 1. maí var komið að því að afhenda afrakstur söfnunarinnar. Stjórn Snigla ásamt fríðum hópi mótorhjólafólks mætti fyrir framan Alþingi til að afhenda Arndísi Ósk Ólafsdóttur Arnalds, framkvæmdastjóra mannvirkjasviðs Vegagerðarinnar, ágóða söfnunarinnar. Svo vel vildi til að Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, var á gangi um Austurvöll og slóst í hópinn enda málið honum sannarlega skylt. Gott samtal varð milli þessara aðila sem sammæltust um að berjast áfram fyrir bættum samgöngum.

Söfnunin gekk framar vonum en í heild söfnuðust 400 þúsund krónur sem samsvarar því að leggja 10 metra af malbiki, eða 50 metra af klæðingu. Það munar sannarlega um minna.

Sniglarnir og Vegagerðin eiga í góðum samskiptum og funda reglulega yfir árið til að ræða málefni tengd umferðaröryggi og stöðu í samgöngum. Vegagerðinni er mikilvægt að eiga í góðu sambandi við þennan mikilvæga hóp í umferðinni.

. Svo vel vildi til að Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, var á gangi um Austurvöll og slóst í hópinn enda málið honum sannarlega skylt.

. Svo vel vildi til að Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, var á gangi um Austurvöll og slóst í hópinn enda málið honum sannarlega skylt.

Alls söfnuðust 400 þúsund krónur en fyrir það fást 10 metrar af malbiki eða 50 metrar af klæðingu.

Alls söfnuðust 400 þúsund krónur en fyrir það fást 10 metrar af malbiki eða 50 metrar af klæðingu.