Um helgina má búast við slæmu ferðaveðri, versnandi færð á fjallvegum, sérstaklega á Vesturlandi og Vestfjörðum. Allar líkur eru erfiðum akstursskilyrðum og truflunum á samgöngum vegna ofankomu og hvassviðris. Upplýsingar um færðina eru á Umferdin.is.

Búast má við ófærð um helgina.
Margir fjallvegir á Vesturlandi og Vestfjörðum eru þegar ófærir eða lokaðir vegna veðurs og ófærðar, þar á meðal Holtavörðuheiði, Steingrímsfjarðarheiði og Dynjandisheiði. Einnig er búið að loka Öxnadalsheiði.
Færð og ferðaveður
Spáð er suðvestan hvassviðri eða stormi (15-23 m/s) um mest allt land, með hviðum upp í 35 m/s. Á morgun, laugardag, dregur úr vindi en það hvessir aftur annað kvöld. Búast má við dimmum éljum og snjókomu í flestum landshlutum. Ný lægð gengur yfir annað kvöld með vaxandi snjókomu, sérstaklega sunnanlands.
Varðandi sunnudaginn þá ríkir óvissa um hvar ný lægð mun koma yfir. Hún gæti farið hratt suðaustur af landinu en möguleiki er á mjög sterkum vindhviðum, sérstaklega undir Eyjafjöllum.
Vegagerðin brýnir fyrir vegfarendum að fara varlega og skoða vel upplýsingar um færðina og veðrið.
Hér fyrir neðan má sjá varúðarviðmið vegna vinds fyrir stór ökutæki.

Vindaviðmið stórra bíla.