7. apríl 2026
Skýrsla um hleðslu­innviði fyrir trukka

Íslensk Nýorka hefur birt nýja skýrslu um uppbyggingu hleðsluinnviða fyrir losunarfría trukka við þjóðvegakerfið. Skýrslan var unnin með stuðningi Rannsóknarsjóðs Vegagerðarinnar og RARIK og varpar ljósi á tæknilegar og fjárhagslegar forsendur uppbyggingar.

Iceland-Wales

Iceland-Wales

Í umræðu um orkuskipti í þungaflutningum hefur oft verið bent á umfang og kostnað við innviðauppbyggingu, en niðurstöður skýrslunnar benda til þess að tæknilegar og fjárhagslegar forsendur séu til staðar, þó að áfram þurfi markvissa uppbyggingu.

Ekki er tekin afstaða til endanlegs staðarvals í skýrslunni, heldur stuðst við viðmiðunarsvæði. Þættir á borð við skipulag, landnotkun og tengingar við vegakerfið verða því til umfjöllunar í næstu skrefum.

Niðurstöðurnar nýtast sem mikilvægt innlegg í áframhaldandi vinnu við uppbyggingu innviða á landsvísu, sem nú er í höndum Vegagerðarinnar.

Hlekkur á nánari upplýsingar um verkefnið og skýrsluna sjálfa

Vegagerðin vinnur sömuleiðis að greiningu og þörf á skipulagi og uppbyggingu skilvirks nets nýorkuinnviða fyrir samgöngur um allt land. Sagt er frá því í annarri frétt á vegagerdin.is.

Sjá einnig frétt: Umfangsmikil greining á nýorkuinnviðum fyrir samgöngur