Starfshópur um strandsiglingar, sem Vegagerðin á fulltrúa í, hefur skilað skýrslu undir yfirskriftinni „Strandsiglingar í alfaraleið – hvað þarf til?“ Í skýrslunni leggur starfshópurinn fram sjö tillögur um aðgerðir stjórnvalda sem væru til þess fallnar að styrkja forsendur fyrir strandsiglingar og vöruflutninga á sjó. Tillögur starfshópsins verða nú teknar til skoðunar í innviðaráðuneytinu.

Starfshópurinn afhendir innviðaráðherra skýrslu sína. Frá vinstri eru Fannar, Benedikt, Magnús, Eyjólfur, Sóley, Jón Gunnar og Katrín.
Það er mat starfshópsins að auknir strandflutningar muni auka öryggi á þjóðvegum landsins, draga úr kostnaði ríkisins við þjóðvegakerfið vegna þungaflutninga og styðja við aðgerðir í loftslagsmálum.
Í skýrslunni segir að vöruflutningar hafi þróast þannig frá síðustu aldamótum að landflutningar hafi að verulegu leyti tekið við af strandflutningum en aðeins eitt félag sinni þeim nú hér á landi. Starfshópurinn telur þær breytingar helgast m.a. af hækkun opinberra gjalda á strandsiglingar á undanförnum árum. Nauðsynlegt sé að endurskoða kolefnisálögur á strandflutningum sem í raun eru nú að vinna gegn megin markmiðum slíkra skatta en staðreyndin er að kolefnisspor strandflutninga er minna en landflutninga.
Starfshópurinn telur heildstæða nálgun mikilvæga til að draga úr vexti landflutninga með stefnumótun, efnahagslegum hvötum og endurskoðun á skipulagi flutningakerfisins. Ein mikilvægasta leiðin væri að færa hluta landflutninga yfir í strandflutninga þar sem aðstæður leyfa. Langstærstur hluti vöruflutninga hér á landi fer fram með stórum bifreiðum um þjóðvegi. Álag á vegi hefur aukist hratt á undanliðnum árum, þ.m.t. umferð þungra vörflutningabíla, sem eykur umhverfisáhrif og kostnað við viðhald vega og dregur úr umferðaröryggi.
Verði ekkert að gert blasi við að landflutningar haldi áfram að aukast og álag á vegakerfið og kostnaður við það vaxi umtalsvert á næstu árum. Í skýrslunni kemur fram að vegagerðin telji að innviðaskuld í þjóðvegakerfinu nemi um 180 ma. kr. og að hún eigi að verulegu leyti rætur að rekja til þungaflutninga á vegum landsins.
Starfshópurinn leggur til eftirtaldar tillögur um aðgerðir til að efla strandsiglingar með vöru:
Innviðaráðherra skipaði starfshópinn í ágúst 2025 til að koma með tillögur að aðgerðum til að efla strandflutninga og auka vöruflutninga á sjó í stað flutninga á þjóðvegum. Starfshópnum var m.a. ætlað að vinna áfram með skýrslu sem Vegagerðin gerði fyrir innviðaráðuneytið og skilaði í desember 2024. Í starfshópnum sátu: