29. desember 2025
Skýr­ari aðgrein­ing greiðslu­kerfa Strætó og Vega­gerðar­innar

Skýrari aðgreining greiðslukerfa Strætó og Vegagerðarinnar

Frá og með 1. janúar 2026 verður ekki hægt að nýta fargjöld milli Klapp greiðslukerfis Strætó bs. á höfuðborgarsvæðinu og greiðslukerfis Vegagerðarinnar, sem rekur landsbyggðarstrætó. Þetta þýðir að fargjald sem greitt er í öðru kerfinu nýtist ekki upp í greiðslu í hinu. 

Landsbyggðarstrætó

Landsbyggðarstrætó

  • Strætó bs. sér um almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu og notast við Klapp greiðslukerfið. 
  • Landsbyggðarstrætó er á vegum Vegagerðarinnar, sem rekur eigið greiðslukerfi. Strætó sér um ákveðna upplýsingagjöf og þjónustu fyrir farþega. Farþegar greiða fargjald um borð í vögnunum með reiðufé, greiðslukorti eða áskriftarkorti landsbyggðarstrætó. 

Farþegum er bent á að kynna sér fargjaldaskilmála og greiðslufyrirkomulag á heimasíðu Strætó bs. Þessi breyting er gerð til að skýra framkvæmd og aðgreina greiðslukerfin samkvæmt gildandi reglum. 

Upplýsingar um fargjöld í landsbyggðarstrætó er að finna hér: Gjaldskrá – Strætó