19. maí 2023
Skrif­að undir verk­samn­ing um breikk­un Reykja­nesbrautar

Skrifað undir verksamning um breikkun Reykjanesbrautar

Vegagerðin og ÍAV hafa skrifað undir verksamning um tvöföldun Reykjanesbrautar (41) milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns ásamt aðliggjandi hliðarvegum. Tilboð voru opnuð 5. apríl en ÍAV bauð tæpa fjóra milljarða króna í verkið sem var talsvert undir áætluðum verktakakostnaði. Undirbúningur hefst strax en framkvæmdir á verkstað hefjast í sumar.

Þóroddur Ottesen Arnarson, forstjóri ÍAV, og Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, handsala samninginn.

Þóroddur Ottesen Arnarson, forstjóri ÍAV, og Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, handsala samninginn.

Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, og Þóroddur Ottesen Arnarson, forstjóri ÍAV, skrifuðu undir verksamning í húsnæði Vegagerðarinnar í Garðabæ í dag, 17. maí 2023.

„Þetta eru mjög ánægjuleg tímamót enda klárast nú breikkun Reykjanesbrautar frá höfuðborgarsvæðinu og að Fitjum í Keflavík. Þessarar framkvæmdar hefur lengi verið beðið og Vegagerðin hefur lagt áherslu á að koma henni af stað. Einnig er mjög jákvætt að nú hyllir undir að kláraðar verði framkvæmdir við tvo slysamestu vegi landsins, annars vegar Suðurlandsveg og hins vegar Reykjanesbraut,“ segir Bergþóra.

„Við erum afskaplega ánægðir með þennan samning. Og okkur finnst sérstaklega skemmtilegt að fá að klára þennan áfanga sem ÍAV einmitt byrjaði á undir lok sjöunda áratugarins þegar vegurinn var styrktur fyrst,“ segir Þóroddur.

Samstarfsverkefni margra aðila

Útboðið heitir Reykjanesbraut (41-15), Krýsuvíkurvegur – Hvassahraun, og nær yfir umfangsmikið vegaframkvæmda- og uppbyggingarverkefni. Í því felst lagning Reykjanesbrautar á um 5,6 km kafla, en verkið felur einnig í sér byggingu brúarmannvirkja og undirganga fyrir akandi, gangandi og hjólandi umferð. Markmið verkefnisins er að tryggja öruggari, skilvirkari og greiðari umferð á þessum mikilvæga kafla þjóðvegarins, sem þjónar bæði íbúum Hafnarfjarðar og atvinnusvæðum í grennd. Verkið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Hafnarfjarðarbæjar, HS Veitna, Mílu, Orkufjarskipta, Ljósleiðarans, Carbfix og Veitna og endurspeglar víðtæka samvinnu opinberra og einkaaðila aðila.

Á Reykjanesbraut verða gerð mislæg gatnamót við Rauðamel, en þar er fyrirhugað nýtt framtíðar byggingarsvæði Hafnarfjarðar sem mun stuðla að betri tengingu við aðliggjandi svæði og bæta umferðarflæði. Mislæg gatnamót við Straumsvík verða stækkuð og þar verður bætt tenging að iðnaðarsvæði Hafnarfjarðar við Álhellu, sem mun auka skilvirkni fyrir atvinnu- og vöruflutninga. Þar að auki verða gerðir eftirlitsstaðir við Reykjanesbraut til að auka umferðaröryggi og auðvelda viðhald vega. Stofnstígur verður lagður fyrir gangandi og hjólandi á milli Hraunavíkur og Straums, með tengingu við Straumsvík, sem stuðlar að öruggum og aðgengilegum samgöngum fyrir þá sem ferðast með sjálfbærum ferðamáta.

Verktakinn mun hefja undirbúning fljótlega með þeim áformum að framkvæmdir hefjist af fullum krafti síðsumars 2023. Áætlað er að verkinu verði að fullu lokið í lok júní 2026, en verkefnið mun skila til muna bættri umferðarflæði og auknu öryggi fyrir alla vegfarendur á svæðinu.

Þeim sem vilja kynna sér verkið nánar er bent á myndband um framkvæmdina hér að neðan, sem sýnir útfærslu verkefnisins, skipulag gatnamóta, brúarmannvirkja og undirganga, auk tengingar við stígakerfi fyrir gangandi og hjólandi. Myndbandið gefur góða yfirsýn yfir verkefnið og sýnir fram á hvernig framkvæmdin mun bæta samgöngur og öryggi á þessu mikilvæga svæði.