Klæðingarlag á um eins kílómetra kafla Snæfellsnesvegar við Kaldármela, sem skemmdist skömmu eftir útlögn í síðustu viku, hefur verið fræst upp. Vegagerðin og verktakinn vinna saman að áætlun til að vegurinn verði tilbúinn áður en vetrar. Meðal annars er skoðað að lengja vinnudaga og vinna um helgar eftir því sem aðstæður leyfa.

Framkvæmdasvæði verksins: Snæfellsnesvegur (54), Brúarhraun - Hraunsmúli, endurbætur
Verkið „Snæfellsnesvegur (54), Brúarhraun – Hraunsmúli, endurbætur“ felst í endurbyggingu vegarins á um 6 km kafla þar sem lögð eru ný styrktar- og burðarlög auk klæðingar.
Stefnt er að því að hefja klæðingu um mánaðarmótin og að búið verði að leggja tvö lög af klæðingu seinni part september.
Vegfarendur eru minntir á að um framkvæmdasvæði er að ræða. Hámarkshraði hefur verið lækkaður í 50 km/klst. en mikilvægt er að aka varlega og haga akstri eftir aðstæðum.
Fjallað var um málið í frétt 24. ágúst 2026: https://www.vegagerdin.is/vegagerdin/starfsemi/frettir/lagfaera-tharf-nyjan-klaedingarkafla-a-snaefellsnesvegi