Sjóvarnir á Kjalarnesi endurnýjaðar
Vinna við endurnýjun og lagfæringar á sjóvörnum við Hofsvík á Kjalarnesi hefst á næstu dögum. Vegna framkvæmdanna verður einbreiður kafli á Hringvegi (1-f5) í suðausturátt, í átt að bænum, lengdur um 500-600 m. Verklok eru áætluð eigi síðar en 1. júní næstkomandi.

Sjóvarnir verða endurnýjaðar.
Hámarkshraði þar sem ekið er inn að vinnusvæði verður lækkaður í 50 km/klst. en leyfður hámarkshraði meðfram vinnusvæði verður áfram 70 km/klst. Ökumenn eru beðnir um að sýna aðgát og virða merkingar.
Suðurverk hf. sér um endurnýjun og lagfæringar á sjóvörnunum. Colas mun sjá um fræsun á veginum samhliða framkvæmdum. Uppsetning merkinga hefst á morgun, þriðjudag.