Spáð er óvenjulágum þrýstingi yfir landinu á morgun, miðvikudaginn 14. október. Því fylgir töluverður loftþrýstingsáhlaðandi sem veldur hærri sjávarstöðu og þar sem vindur blæs af hafi má gera ráð fyrir að það geti gefið yfir sjóvarnir og hafnagarða. Einnig gæti sjór gengið á land á strandsvæðum.
Meira má sjá um t.d. ölduspá á grunnslóð og sjávarfallaspá í höfnum á Sjólag.is
Spáð er mjög hárri og þungri sunnanöldu, yfir 8 m, rétt utan Víkur. Ölduhæð mun ná hámarki á sama tíma og kvöldflóðið, eða um kl. 21 á morgun, miðvikudag. Við svipaðar aðstæður í desember í fyrra flæddi yfir þjóðveginn svo það gæti gerst aftur á morgun.
Spáð er mjög hárri og þungri öldu, yfir 10m, með þannig stefnu að hún gæti borist inn að höfnum, t.d. á Djúpavogi, Breiðdalsvík og Stöðvarfirði en þó er það óvíst.
Spáð er hárri og þungri öldu og norðanátt, sem nær hámarki á flóðinu á miðnætti annað kvöld til kl. 03/06 fimmtudagsmorgun.. Áhlaðandi verður mikill borið saman við sjávarfallasveifluna á þessu svæði. Áhrifanna mun gæta í höfnum á Húsavík og Sauðárkróki.

Sjólagsspá fyrir miðvikudagskvöldið, 14. október.