Árlegur alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa verður haldinn sunnudaginn 15. nóvember. Minningarathafnir verða víða um land og að þessu sinni verður sjónum beint að ungum vegfarendum í umferðinni og hraðakstri ungmenna.

Í Reykjavík verður minningarathöfn haldin venju samkvæmt við þyrlupall bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi kl. 14:00. Halla Tómasdóttir forseti Íslands og Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra flytja stutt ávörp og síðan mun maður segja reynslusögu sína en ungur að árum varð hann, sem ökumaður, valdur að banaslysi. Dagskráin tekur mið af áherslu minningardagsins á ungt fólk í umferðinni, þ.á m. hættunni sem fylgir hraðakstri. Hraðakstur er ein helsta orsök alvarlegra slysa og banaslysa, ekki síst meðal ungs fólks.
Slysavarnafélagið Landsbjörg, í samvinnu við viðbragðsaðila á hverjum stað, standa að minningarathöfnum víða um land. Í ár munu unglingadeildir björgunarsveitanna gegna lykilhlutverki við athafnirnar.
Einkennislag minningardagsins er sem fyrr lag KK, I Think of Angels, í flutningi hans og Ellenar sem samið var til minningar um systur þeirra sem lést í umferðarslysi í Bandaríkjunum árið 1992. Lagið verður flutt samtímis á öllum útvarpsstöðum kl. 14 á minningardaginn. Nemendur í MH-kórnum munu síðan flytja lagið við athöfnina í Fossvogi.
Tilgangurinn með deginum er að minnast þeirra sem látist hafa í umferðarslysum og leiða hugann að ábyrgð hvers og eins í umferðinni. Þá er rík hefð fyrir því á minningardeginum að færa starfsstéttum sem sinna björgun og aðhlynningu þakkir fyrir mikilvægt og óeigingjarnt starf þeirra.
Minningardagurinn er alþjóðlegur undir merkjum Sameinuðu þjóðanna sem hafa tileinkað þriðja sunnudag í nóvember þessu efni. Frá því að fyrsta banaslysið var skráð á Íslandi 25. ágúst 1915, hafa samtals 1642 einstaklingar látist í umferðinni (m.v. 15. október 2026). Enn fleiri hafa slasast alvarlega, tekist á við áföll, sorgir og eftirsjá af þessum völdum.
Að baki minningardeginum standa innviðaráðuneytið, Samgöngustofa, Landsbjörg, Neyðarlínan, Lögreglan, Vegagerðin og ÖBÍ réttindasamtök. Þá taka fulltrúar ólíkra viðbragðsaðila þátt í minningarstundinni. Þetta verður í sextánda sinn sem minningardagurinn er haldinn á Íslandi.