Á síðustu árum hafa sjálfbærni og umhverfismál tekið sífellt stærri sess í starfsemi Vegagerðarinnar. Stofnun deildar umhverfis og sjálfbærni í apríl 2024 og samþykkt sjálfbærnisstefnu árið 2025 marka tímamót í nálgun Vegagerðarinnar í málaflokknum. Stefna stofnunarinnar er skýr: sjálfbærni á að vera leiðarljós í öllum þáttum starfseminnar, allt frá undirbúningi og hönnun til framkvæmdar, reksturs og viðhalds samgöngumannvirkja.


Höfundur greinar er Hólmfríður Bjarnadóttir, forstöðukona sjálfbærnideildar Vegagerðarinnar.
Deild umhverfis og sjálfbærni hefur það hlutverk að móta, innleiða og fylgja eftir sjálfbærnistefnu Vegagerðarinnar og vinna að því að sjálfbærni verði sjálfsagður hluti allrar starfsemi stofnunarinnar. Starfsmenn deildarinnar sinna stefnumótun, veita ráðgjöf og stuðning, auk þess sem þeir hafa eftirlit með umhverfismálum og sjálfbærni innan stofnunarinnar. Verkefni deildarinnar ná meðal annars til umhverfisstjórnunar í verkefnum Vegagerðarinnar, reikna kolefnisspor framkvæmda og rekstrar, innleiða umhverfiskröfur í útboðum, endurnýtingar hráefna við framkvæmdir og flokkun úrgangs, sem og fræðslu til starfsfólks um sjálfbærni, loftslagsmál og umhverfisáhrif.
Sjálfbærnistefnan byggir á þremur meginstoðum sjálfbærrar þróunar:
Sjálfbærnistefnan er því ekki aðeins yfirlýsing heldur rammi sem tryggir að aðgerðir, ábyrgð og framfylgd séu skýr.
Sjálfbærnistefnunni fylgir aðgerðaáætlun með 20 tímasettum aðgerðum sem ná til allrar starfsemi Vegagerðarinnar. Mælikvarðar sjálfbærnivísa eru uppfærðir reglulega, árangur skráður og framfylgd tryggð í samræmi við stefnu.
Dæmi um aðgerðir eru:
Sjálfbærni er ekki verkefni með upphaf og endi heldur viðhorf sem á að vera innbyggt í alla starfsemi. Vegagerðin leitast við að vera leiðandi í sjálfbærni, stuðla að öruggum, hagkvæmum og umhverfisvænum samgöngum um allt land og tryggja að framtíðarinnviðir standist loftslagsmarkmið og væntingar samfélagsins.
Samstarf, samtal og miðlun þekkingar eru lykilþættir til að ná þessum markmiðum, þar sem starfsfólk og deildir víðs vegar um landið vinna saman að stöðugum umbótum og innleiðingu sjálfbærnihugsunar.
Þessi grein birtist fyrst í Framkvæmdafréttum 2. tbl. 2026. Hlekkur á blaðið