Þrír öflugir, færanlegir blásarar eru í smíðum fyrir Vegagerðina en þeir geta nýst ef upp koma neyðartilvik í jarðgöngum. Þeir verða afhentir slökkviliðunum á Ísafirði, í Fjallabyggð og á Höfn í Hornafirði en búnaðurinn getur m.a. komið að notum við að losa um reyk og mengun í göngum. Stálorka í Hafnarfirði sér um hönnun, smíði og samsetningu blásaranna.

Blásarnir nýtast ef upp koma neyðartilvik í jarðgöngum.
Megintilgangurinn með búnaðinum er að tryggja betur öryggi í jarðgöngum, sérstaklega þar sem blásarakerfi er ekki til staðar. Einnig geta blásararnir nýst sem stuðningur við blásarakerfi í eldri jarðgöngum.
Blásararnir eru festir á sérútbúnar kerrur svo auðvelt sé að flytja þá á milli staða en fullbúin kerra með blásara vegur um 3,4 tonn. Blásararnir eru mjög öflugir en afl hvers og eins þeirra er á við þrjá blásara í Hvalfjarðargöngum. Hver þeirra er knúinn áfram af 100 kW díselvél.
Viðbragðsaðilar geta nýtt blásarana við slökkvistörf, meðal annars við að losa um reyk og mengun úr göngum. Einnig er hægt að tengja þá við vatnskerfi og þannig hægt að blása vatnsúða inn í göng.
Bæði blásararnir og kerrurnar eru smíðuð að erlendri fyrirmynd en sambærilegar kerrur hafa verið notaðar við góðan orðstír. Þótt búnaðurinn sé fyrst og fremst hugsaður í þeim tilgangi að aðstoða við neyðartilfelli í jarðgöngum þá er notkun þeirra ekki bundin við þær aðstæður. Þannig væri t.d. hægt að nota blásarana við almennt slökkvistarf eins og t.a.m. í bílakjöllurum, ásamt því að virka sem varaafl við hinar ýmsu aðstæður.
Áætlað er að smíði blásaranna og kerranna ljúki um og eftir áramótin og verður búnaðurinn þá afhentur slökkviliðunum á Ísafirði, í Fjallabyggð og á Höfn í Hornafirði til notkunar. Staðsetning blásarakerranna var ákveðin út frá metinni þörf og niðurstöðum úr áhættumati jarðganga.