3. mars 2025
Samn­ingur við Mýflug fram­lengdur til 15. mars

Samningur við Mýflug framlengdur til 15. mars

Vegagerðin hefur framlengt samning við flugfélagið Mýflug um áætlunarflug milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur um tvær vikur, eða til 15. mars 2025. Flogið verður fjórum sinnum í viku líkt og verið hefur undanfarna mánuði.

Vegagerðin samdi við Mýflug um áætlunarflug milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur í október á síðasta ári. Í samningnum, sem gildir í 3 ár, felst áætlunarflug yfir helstu vetrarmánuðina, desember, janúar og febrúar, fjórum sinnum í viku. Nú hefur samningurinn verið framlengdur um tvær vikur og gildir til 15. mars eins og fyrr segir. 

Flugleiðin er styrkt sérstaklega af ríkinu til að tryggja tímabundna lágmarksþjónustu á þessari leið á meðan markaðslegar forsendur eru ekki til staðar, enda er flugið mikilvægt fyrir íbúa og atvinnulíf á svæðinu.