2. október 2026
Samn­ingur um for- og verk­hönn­un gatna­móta Reykja­nesbrautar og Bústaða­vegar undir­ritaður

Skrifað var undir samning um for- og verkhönnun gatnamóta Reykjanesbrautar og Bústaðavegar, ásamt hluta af 3. lotu Borgarlínu, í dag, föstudaginn 2. október. Bergþóra Þorkelsdóttir forstjóri Vegagerðarinnar og Arnar Björn Björnsson framkvæmdastjóri exa nordic ehf. undirrituðu samninginn.

Arnar Björn Björnsson og Bergþóra Þorkelsdóttir við undirritunina.

Arnar Björn Björnsson og Bergþóra Þorkelsdóttir við undirritunina.

Í byrjun júlí óskaði Vegagerðin eftir tilboði í for- og verkhönnun á endurgerð gatnamóta Reykjanesbrautar og Bústaðavegar, auk hönnunar á legu Borgarlínu frá Stekkjarbakka A-V að væntanlegri skiptistöð Borgarlínu í Vogabyggð sem staðsett verður við Súðarvog. Ráðgjafafyrirtækið exa nordic ehf. var hlutskarpast í útboðinu en alls bárust fimm tilboð.

Á leiðinni verða tvær nýjar brýr undir Vesturlandsveg við vestari kvísl Elliðaár, tvenn núverandi undirgöng sem þarf að lengja og ný brú fyrir rampa á gatnamótum við Bústaðaveg. Reykjanesbraut þarf að hliðfæra til vesturs á kafla til að forðast inngrip á verndarsvæði Elliðaárdals. Útboðið var auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

Gatnamót Reykjanesbrautar og Bústaðavegar eru hluti af Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins þar sem lögð er áhersla á að bæta innviði fyrir fjölbreytta ferðamáta og skapa öruggari leiðir um höfuðborgarsvæðið. Verkefnið er unnið í samstarfi Vegagerðarinnar, Betri samgangna, Reykjavíkurborgar og Veitna.