1. apríl 2026
Samið við Jan De Nul um dýpk­un Land­eyja­hafnar

Vegagerðin hefur samið við belgíska dýpkunarfyrirtækið Jan De Nul um dýpkun Landeyjahafnar árin 2026 til 2029. Jan De Nul sérhæfir sig meðal annars í dýpkunarframkvæmdum og er meðal stærstu fyrirtækja heims á sínu sviði, með starfsemi um allan heim.

Dýpkunarskipið Sebastiano Cabato.

Dýpkunarskipið Sebastiano Cabato.

Verkefnið „Landeyjahöfn Maintenance Dredging 2026 – 2029“ var boðið út í lok desember og tilboð opnuð 10. febrúar 2026. Fjögur tilboð bárust í verkið og réðst niðurstaða útboðsins af samræmdu mati á verði og tæknilegum þáttum.

Útboðið felur í sér reglubundna dýpkun á hafnarsvæði og í nágrenni hafnarinnar, með það að markmiði að tryggja nægjanlegt dýpi og öruggar siglingaaðstæður til og frá höfninni. Verkið er skipulagt í þremur tímabilum, frá september til apríl ár hvert, og er áætlað að árlegt dýpkunarmagn sé á bilinu 250.000 til 500.000 rúmmetrar.

Fyrirtækið Jan De Nul hefur reynslu af aðstæðum við Landeyjahöfn enda vann fyrirtækið að dýpkun hafnarinnar árin 2015 til 2018. Dýpkunarskipið sem verður notað heitir Sebastiano Cabato. Það er byggt 2011, er 93 m að lengd og 19,8 m að breidd. Nánari upplýsingar um skipið má nálgast með því að smella á þennan hlekk.

Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, er ánægð með niðurstöðuna.

 

„Við fögnum samstarfi við öflugan alþjóðlegan verktaka sem býr yfir víðtækri þekkingu og reynslu á þessu sviði. Fyrirtækið hefur jafnframt áður komið að dýpkun í Landeyjahöfn, sem skiptir máli fyrir verkefnið. Áhugi þeirra á verkefninu er augljós og væntingar okkar til samstarfsins því mjög jákvæðar.“

Dýpkunarskipið Sebastiano Cabato.

Dýpkunarskipið Sebastiano Cabato.