Vegagerðin og Icelandair hafa náð samkomulagi um flug til Ísafjarðar. Samningurinn gildir til fjögurra ára. Lágmarksfjöldi ferða er 452 hringferðir á ári.

Notast verður við flugvélar af gerðinni DHC- 8-200 (Dash-8) sem eru 37 sæta.
Flug til Ísafjarðar var boðið út í byrjun árs. Kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar hljóðaði upp á 1,3 ma. kr. fyrir heildarverkið. Aðeins eitt tilboð barst í verkið frá Icelandair upp á rúma 3,5 ma.kr. Vegagerðin hafnaði tilboðinu en bauð Icelandair til samningsviðræðna sem staðið hafa síðustu vikur.
Á grundvelli útboðs og samningsviðræðna var ritað undir samning í gær, miðvikudaginn 15. apríl. Heildarsamningsfjárhæð er kr. 1.690.480.000,- fyrir fjögur ár.
Samkvæmt honum verður lágmarksfjöldi flugferða 452 hringferðir á ári á samningstímabilinu frá 1. september 2026 til og með 31. ágúst 2030. Þetta er um 28,5% fækkun ferða miðað við það sem gert var ráð fyrir í upphaflegu útboði. Þetta er í samræmi við heimild um magnbreytingar samkvæmt útboðsgögnum.
Samningstími er 4 ár, frá og með 1. september 2026 og til og með 31. ágúst 2030 með heimild til framlengingar um eitt ár ef forsendur þykja fyrir því.
Fjöldi flugferða (hringferða) á viku er breytilegur eftir árstíma. Þannig er miðað við minnst 7 ferðir á viku í janúar, febrúar, nóvember og desember, minnst 9 ferðir í mars, apríl, september og október en yfir sumartímann frá maí og fram í ágúst verða farnar að minnsta kosti 10 ferðir á viku. Notast verður við DHC- 8-200 (Dash-8) sem eru 37 sæta og þykja henta vel í Ísafjarðarflugið.
Næstu skref eru að útfæra flugáætlun í samráði við hagsmunaaðila eftir þeim forsendum sem eru í samningnum og er gert ráð fyrir að sú vinna hefjist strax svo flugin geti verið komin í sölu innan skamms.
Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar:
„Við erum ánægð með að hafa náð þessum samningi enda ekki sjálfgefið að hægt væri að ná samkomulagi. Þessi niðurstaða er gríðarlega mikilvæg fyrir Vestfirðinga þar sem flugið er mjög mikilvægur þáttur í samgöngum fjórðungsins.“
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair:
„Við erum ánægð með að ná samkomulagi við Vegagerðina og halda áfram flugi til Ísafjarðar. Flugleiðin er mikilvæg fyrir íbúa á Vestfjörðum, en einnig teljum við tækifæri fólgin í því að þessi frábæri áfangastaður verði áfram aðgengilegur í sölu- og dreifikerfi okkar fyrir viðskiptavini okkar í Evrópu og Norður-Ameríku.“

Flogið yfir Ísafjörð.