Samið við Icelandair um flug til Hornafjarðar
Vegagerðin hefur samið við Icelandair um áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hornafjarðar árin 2025 til 2028.
Tilboðið var auglýst í mars og tilboð opnuð 23. apríl. Þrjú tilboð bárust:
Styrkfjárhæðin fyrir flugleiðina (F1) Reykjavík – Hornafjörður – Reykjavík, er kr. 1.259.700.000,- fyrir heildarverkið sem er þrjú ár. Ætlunin er að flognar verði fimm ferðir í viku sem gera um 370 sæti í hverri viku.
Samningstíminn er þrjú ár og gildir frá 1. september í ár, til og með 31. ágúst 2028. Heimild er til framlengingar um eitt ár í senn, að hámarki tvö.
Færri ferðir verða farnar nú en áður, fimm í stað átta, en á móti kemur að sætaframboð er mun meira þar sem notaðar verða stærri vélar af gerðinni DHC- 8-200 ( Dash-8 ) sem eru 37 sæta.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair:
„Við erum spennt fyrir því að bæta Höfn í Hornafirði við leiðakerfi okkar innanlands. Flugleiðin er mikilvæg fyrir íbúa á Suðausturlandi en einnig teljum við tækifæri fólgin í því að fá þennan vinsæla áfangastað ferðamanna inn í sölu- og dreifikerfi okkar og gera hann aðgengilegan viðskiptavinum í Evrópu og Norður-Ameríku. Jafnframt munu farþegar til og frá Höfn nú geta nýtt sér öfluga þjónustu Icelandair, þar með talið stafræna þjónustu og vildarklúbb.“
Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar:
„Það er okkur mikil ánægja að ganga frá samningi um þessa mikilvægu flugleið við Icelandair, öflugt og reynslumikið flugfélag með traustan rekstrargrunn. Það skiptir miklu máli að geta tryggt flugið til Hornafjarðar til næstu ára.“
Flugvél Icelandair sem notuð verður í flugi til Hafnar í Hornafirði.