Samið um dýpkun Grynnslanna til þriggja ára
Skrifað var undir verksamning milli Hornafjarðarhafnar og Boskalis Westminister Ltd. um dýpkun Grynnslanna við Hornafjörð í dag, 11. febrúar. Undirritunin fór fram í húsnæði Vegagerðarinnar sem sá um útboðið. Samningurinn gildir næstu þrjú árin og dýpkunin fer fram einu sinni á ári.

Skrifað undir samning um dýpkun á Grynnslunum. F.v. Keith Dee og Paul M. de Jong, Sigurjón Andrésson og Bergþóra Þorkelsdóttir.
Boskalis Westminister Ltd. er hollenskt dýpkunarfyrirtæki, hluti af Royal Boskalis Group sem starfar í yfir 90 löndum með um 11 þúsund starfsmenn og ríflega 500 skip.
Útboðið var auglýst í lok síðasta árs og óskað eftir tilboðum í viðhaldsdýpkun á innsiglingarennu að Hornafjarðarhöfn. Tilboð bárust frá sex aðilum en Boskalis Westminister Ltd. bauð best. Til verksins fara 300 milljónir króna á ári og í tilboðunum var tilgreint hversu marga rúmmetra fyrirtækin gætu dýpkað fyrir þá fjárhæð. Boskalis Westminister Ltd. bauðst til að dýpka um 1.955.000 rúmmetra á þessum þremur árum. Sveigjanleiki í útboðinu er nokkur því fyrirtækið getur valið hvenær það dýpkar á tímabilinu maí til október.
Paul M. de Jong, framkvæmdastjóri Boskalis Westminster Ltd. var afar sáttur að undirritun lokinni.
„Við höfum reynslu af alls konar aðstæðum og verkefnum víða um heim. Þó höfum við aldrei áður starfað á Íslandi. Sveigjanleiki útboðsins gerði okkur kleift að taka þátt í því, og þar sem við búum yfir þeim búnaði sem þarf til verksins ákváðum við að slá til. Við fögnum því að vera hér næstu þrjú árin og hlökkum til að sjá hvort við getum þróað frekari verkefni á Íslandi.“
Sigurjón Andrésson, bæjarstjóri Hornafjarðar, var ánægður að fá loks fyrirsjáanleika í dýpkunarframkvæmdir í höfninni.
„Með þessum samningi er stigið mikilvægt skref í að tryggja fyrirsjáanleika og stöðugleika í dýpkun á Grynnslunum. Gert er ráð fyrir að fjarlægt verði meira efni en áður hefur þekkst og samningurinn byggir á margra ára rannsóknum, mælingum og góðu samstarfi sveitarfélagsins, skipstjórnarmanna sem gjörþekkja svæðið, Vegagerðarinnar og sérfræðinga DHI. Niðurstöður rannsóknanna sýna jafnframt að bygging leiðigarða er raunhæf lausn til lengri tíma litið, sem gæti dregið verulega úr þörf fyrir dýpkun eða jafnvel gert hana óþarfa. Þetta skref er sérstaklega mikilvægt í ljósi umfangsmikilla fjárfestinga í sjávarútvegi á svæðinu á undanförnum misserum, sem nema á annan tug milljarða króna.“
Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, tekur undir með Sigurjóni en Vegagerðin hefur komið að rannsóknum á svæðinu.
„Dýpkun á Grynnslunum hefur um árabil verið þróunarverkefni í samstarfi Vegagerðarinnar og Hornafjarðarhafnar. Það er afar ánægjulegt að vera komin á þann stað að tryggt hafi verið fjármagn til þriggja ára samnings um dýpkun. Jafnframt er það mikið fagnaðarefni að afar hagstætt tilboð barst frá Boskalis Westminister Ltd.“

Dýpkunarskip frá Boskalis Westminister Ltd.

Paul M. de Jong, framkvæmdastjóri Boskalis Westminister Ltd. og Sigurjón Andrésson, bæjarstjóri Hornafjarðar.

Skrifað undir samning um dýpkun á Grynnslunum. F.v. Keith Dee og Paul M. de Jong, Sigurjón Andrésson og Bergþóra Þorkelsdóttir.