2. júní 2026
Sæbrautar­stokkur – upptaka af kynn­ingar­fundi

Á annað hundrað manns mættu opinn kynningarfund vegna Sæbrautarstokks sem Reykjavíkurborg, Vegagerðin og Betri samgöngur stöðu fyrir mánudaginn 1. júní í Vogaskóla.

Opinn kynningarfundur vegna Sæbrautarstokks í Vogaskóla 1. júní 2026.

Opinn kynningarfundur vegna Sæbrautarstokks í Vogaskóla 1. júní 2026.

Þorsteinn R. Hermannsson, framkvæmdastjóri Betri samgangna, fór yfir helstu atriði Samgöngusáttmálans en hann var jafnframt fundarstjóri.

Á fundinum kynnti Kristján Árni Kristjánsson, verkfræðingur á Höfuðborgarsvæði Vegagerðarinnar, framkvæmdina og Þórhildur Guðmundsdóttir, verkfræðingur frá Verkís verkfræðistofu, sagði frá umhverfismatsskýrslu. Loks kynntu Björn Guðbrandsson, arkitekt hjá Arkís arkitektum og Sigríður Magnúsdóttir, arkitekt hjá Teiknistofunni Tröð,  tillögu að nýju deiliskipulagi Vogavherfis og Vogabyggðar 2.

Upptöku af fundinum er að finna hér:

Bætir flæði og umhverfisgæði

Sæbrautarstokkur er hluti af Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og verður staðsettur á u.þ.b. 1 km löngum kafla frá mislægum gatnamótum við Miklubraut og norður fyrir gatnamót Kleppsmýrarvegar og Skeiðarvogs. Á yfirborði stokksins verður nýr, grænn hverfisgarður sem bindur saman hverfin Vogahverfi og Vogabyggð.

Markmið Sæbrautarstokks er að bæta umhverfisgæði og tengja betur saman hverfi, greiða fyrir umferðarflæði á Sæbraut og að greiða götu Borgarlínunnar. Þá er mannvirkinu ætlað að bæta flæði vöruflutninga við Sundahöfn og er ein af forsendum Sundabrautar.

Hægt er að nálgast frekari gögn í Skipulagsgáttinni www.skipulagsgatt.is. Opið er fyrir athugasemdir til og með 24. júní nema umhverfismatsskýrslan er til kynningar til 29. júní.