Rannsóknarverkefni með þátttöku Vegagerðarinnar hafa á undanförnum mánuðum hlotið styrki úr þremur samkeppnissjóðum. Verkefnin snúa annars vegar að þróun umhverfisvænni steypu fyrir íslenskar aðstæður og hins vegar að auknum viðbúnaði og áhættustjórnun vegna jarðskjálfta. Úthlutanirnar endurspegla öflugt rannsóknarstarf og vaxandi samstarf Vegagerðarinnar við háskóla, rannsóknastofnanir og atvinnulíf.

Dr. Gísli Guðmundsson, verkefnisstjóri hjá Tæknisetri, og Jón Elí Guðmyndsson, rannsóknarmaður á Tæknisetri vinna í að blanda eina gerð af umhverfisvænni brúarsteypu.
„Það er afar ánægjulegt að sjá verkefni með þátttöku Vegagerðarinnar ná árangri í harðri samkeppni um rannsóknarfé. Þessir styrkir gera okkur kleift að efla þekkingu á sjálfbærri mannvirkjagerð og auka skilning á áhrifum náttúruvár á innviði landsins,“ segir Ólafur Sveinn Haraldsson, forstöðumaður rannsóknadeildar Vegagerðarinnar.
Á undanförnum árum hefur Vegagerðin markvisst eflt rannsóknarstarf sitt og byggt upp öflugt samstarfsnet innanlands og erlendis. Nýlegar styrkveitingar eru til marks um þá uppbyggingu og skapa mikilvægar forsendur fyrir frekari þróun þekkingar sem nýtist við hönnun, rekstur og viðhald innviða um land allt.
Verkefnið „Hagnýtt mat á umhverfisvænni steypu við íslenskar aðstæður“ hlaut 37,4 m.kr. styrk úr Aski – mannvirkjarannsóknasjóði HMS. Verkefnið er samstarfsverkefni Tækniseturs, Vegagerðarinnar, BM Vallár, Háskólans í Reykjavík, Vistu verkfræðistofu og Verkís.
Markmið verkefnisins er að auka þekkingu á umhverfisvænni steypu við íslenskar aðstæður og leggja mat á hvernig hægt sé að draga úr kolefnisspori steypu án þess að skerða endingu, styrk eða hagkvæmni mannvirkja. Verkefnið felur meðal annars í sér efnisprófanir, langtímarannsóknir og rannsóknir á umhverfisvænni brúarsteypu fyrir íslenskar aðstæður.
Niðurstöður verkefnisins geta skapað mikilvægan grunn fyrir þróun næstu kynslóðar mannvirkja með lægra kolefnisspor og sambærilega eða betri endingu en hefðbundnar lausnir.
Verkefnið „Umhverfisvæn steypa til framtíðar“ hlaut styrk úr Tækniþróunarsjóði. Verkefnið byggir á fyrri rannsóknum sem Vegagerðin og samstarfsaðilar hafa unnið á sviði umhverfisvænni brúarsteypu og sjálfbærrar mannvirkjagerðar. Samstarfsaðilar eru Tæknisetur, Hornsteinn, Vegagerðin og Háskóli Íslands.
Markmið verkefnisins er að þróa og meta nýjar steypublöndur með lægra kolefnisspor sem henta íslenskum aðstæðum og uppfylla jafnframt kröfur um styrk, endingu og hagkvæmni. Verkefnið mun stuðla að frekari þróun og innleiðingu umhverfisvænni lausna í mannvirkjagerð og styrkja stöðu Íslands á sviði sjálfbærra byggingarefna.
Fyrir Vegagerðina er verkefnið mikilvægt skref í átt að sjálfbærari uppbyggingu innviða og styður við markmið um að draga úr loftslagsáhrifum framkvæmda án þess að skerða öryggi eða endingu mannvirkja.
Verkefnið INSPIRE hlaut styrk úr Markáætlun um náttúruvá. Verkefnið er samstarfsverkefni Háskóla Íslands, Samsýnar, Landsvirkjunar, Vegagerðarinnar og Náttúruhamfaratryggingar Íslands.
Markmið verkefnisins er að þróa heildstæða umgjörð til að meta og draga úr jarðskjálftaáhættu á Íslandi. Verkefnið byggir á rannsóknum á sviði jarðskjálftaverkfræði, jarðtækni og samfélagsvísinda og mun meðal annars þróa stafræna netlausn sem samþættir rauntímamæligögn, upplýsingar um mannvirki og tjónnæmislíkön til að meta líklegt tjón í kjölfar jarðskjálfta.
Í einum af verkþáttum verkefnisins er áhersla lögð á að meta jarðskjálftaáhættu og seiglu mikilvægra innviða, t.d. brúa. Niðurstöðurnar munu styðja við framtíðarákvarðanir um hönnun, rekstur og viðhald innviða með það að markmiði að draga úr áhrifum náttúruhamfara á samfélagið.
Samanlagt sýna þessar úthlutanir sterka stöðu Vegagerðarinnar á sviði rannsókna og þróunar. Verkefnin munu stuðla að aukinni þekkingu, nýsköpun og sjálfbærni í uppbyggingu innviða og efla getu samfélagsins til að takast á við áskoranir framtíðarinnar.