Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar 2026 var haldin í 25. sinn föstudaginn 6. nóvember á Hilton Reykjavík. Dagskráin var að venju fjölbreytt og spennandi.

Bergþóra Þorkelsdóttir forstjóri Vegagerðarinnar setti ráðstefnuna og rifjaði upp sögu hennar. Hún benti á að rannsóknarstarf hefði verið hluti af starfsemi Vegagerðarinnar í meira en sex áratugi og að rannsóknir hefðu í gegnum tíðina skilað mikilvægri þekkingu, bættum vinnubrögðum og hagkvæmari lausnum.
Í máli sínu nefndi hún nokkur dæmi um ávinning rannsókna, meðal annars þróun klæðinga á íslenskum þjóðvegum, rannsóknir á jöklum og jökulhlaupum sem stuðluðu að einfaldari brúargerð á Skeiðarársandi og nýlegar rannsóknir sem hafa leitt til hönnunarviðmiða um lægra kolefnisspor brúa.
Bergþóra lagði áherslu á mikilvægi þess að efla áfram rannsóknir og nýsköpun, ekki síst vegna þeirra sérstöku áskorana sem íslenskar aðstæður skapa. Rannsóknir skiluðu ekki aðeins lausnum á viðfangsefnum samtímans heldur byggðu einnig upp þekkingu sem gæti reynst ómetanleg þegar takast þyrfti á við áskoranir framtíðarinnar.
Haraldur Þorleifsson, frumkvöðull og stofnandi Ueno og Ramp Up, flutti lykilerindi ráðstefnunnar undir yfirskriftinni Að finna leiðina á leiðinni. Haraldur hefur þurft að takast á við meira mótlæti en flestir, meðal annars vegna vöðvarýrnunarsjúkdóms sem hann glímir við. Í erindinu fjallaði hann um mikilvægi þess að takast á við áskoranir, þora að fara ótroðnar slóðir og finna nýjar leiðir þótt ekki sé alltaf ljóst hvert þær liggja.
Sævar Helgi Bragason, dagskrárgerðarmaður, rithöfundur og vísindamiðlari, var ráðstefnustjóri og stýrði dagskrá og umræðum af mikilli færni.
Alls voru 15 rannsóknarverkefni til umfjöllunar sem spanna fjölbreytt svið, allt frá mannvirkjum og umferðarmálum til umhverfisrannsókna og náttúruvár. Verkefnin endurspegla vel þau fjölbreyttu viðfangsefni sem Vegagerðin fæst við. Gestir fengu meðal annars að fræðast um hvernig draga megi úr kolefnisspori malbiks, hvernig nýta megi rannsóknir og vöktun til að auka öryggi gagnvart skriðuföllum, snjóflóðum og jökulhlaupum og hvernig náttúrulegar breytingar hafa áhrif á samgöngumannvirki.
Samhliða erindunum var veggspjaldasýning þar sem kynnt voru fleiri rannsóknarverkefni.
Að venju eru allar glærur, ágrip erinda og veggspjöld sett á vefinn. Þetta, ásamt myndasafni af ráðstefnunni, má finna á síðu Rannsóknaráðstefnu Vegagerðarinnar.

Haraldur Þorleifsson var aðalfyrirlesari ráðstefnunnar.

Sævar Helgi Bragason var ráðstefnustjóri.

Ólafur Sveinn Haraldsson er forstöðumaður rannsókna hjá Vegagerðinni og á veg og vanda að skipulagningu ráðstefnunnar.

Fjöldi veggspjalda var til sýnis.

Tæplega 300 manns sóttu ráðstefnuna.

Dagskráin var fjölbreytt og skemmtileg að venju