8. október 2026
Rann­sókna­ráðstefna Vega­gerðar­innar 6. nóvem­ber

Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar 2026 verður haldin í 25. sinn föstudaginn 6. nóvember á Hilton Reykjavík Nordica við Suðurlandsbraut, kl. 09.00-16.30. Dagskráin er að venju fjölbreytt og spennandi.

Hringvegurinn um Kambana við Hveragerði,

Hringvegurinn um Kambana við Hveragerði,

Að þessu sinni mun Haraldur Þorleifsson, frumkvöðull og stofnandi Ueno og Ramp Up, flytja lykilerindi ráðstefnunnar undir yfirskriftinni Að finna leiðina á leiðinni.

Sævar Helgi Bragason, dagskrárgerðarmaður, rithöfundur og vísindamiðlari, verður ráðstefnustjóri.

Alls verða 15 rannsóknarverkefni til umfjöllunar sem spanna fjölbreytt svið, allt frá mannvirkjum og umferðarmálum til umhverfisrannsókna og náttúruvár. Samhliða erindunum verður veggspjaldasýning þar sem kynnt verða fleiri rannsóknarverkefni.

Dagskrá ráðstefnunnar

Dagskrá rannsóknaráðstefnunnar.

Dagskrá rannsóknaráðstefnunnar.