Óveðrið sem gekk yfir höfuðborgarsvæðið í morgun, fimmtudaginn 26. mars, hafði mikil áhrif á samgöngur en vegir til og frá svæðinu lokuðust um tíma vegna ófærðar og illviðris. Nú er búið að opna allar leiðir út frá höfuðborgarsvæðinu en Vegagerðin og verktakar á hennar vegum hafa unnið að snjóhreinsun frá því eldsnemma í morgun. Umferð er enn þung og hálka víða og eru vegfarendur beðnir um að aka miðað við aðstæður. Veðrið hefur nú færst yfir landið og víða eru fjallvegir lokaðir.

Vegir lokuðust vegna veðurs.
Vegagerðin tekur undir með aðgerðastjórn höfuðborgarsvæðisins og þakkar fólki fyrir að fara að tilmælum um að halda sig heima meðan veðrið gekk yfir á suðvesturhorninu. Það hjálpaði til við að snjóhreinsun gekk vel fyrir sig og flýtti fyrir því að hægt var að opna helstu leiðir út úr bænum.
Nú gengur veðrið yfir vestur-, norður- og austurhluta landsins og eru viðvaranir Veðurstofunnar í gildi fram eftir degi. Vegna veðurs hafa allir helstu fjallvegir lokast á Vestfjörðum, Norðurlandi, Norðausturlandi, Austurlandi og Austfjörðum. Margir vegir eru á óvissustigi og gætu lokast með skömmum fyrirvara.
Vegagerðin bendir á að nauðsynlegt er að fylgjast vel með nýjustu upplýsingum um færð á vegum og lokanir á Umferdin.is
Þar eru einnig birtar upplýsingar um opnanir og hvenær áætlað er að opna vegi ef slíkt liggur fyrir.

Snjóhreinsun hófst eldsnemma í morgun.

Umferðin er þung og hálka víða.